Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 48

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 48
verið í nágrenninu því það var svo lengi sem vart varð við hana. Sjálfur sá ég henni aðeins einu sinni bregða fyrir svo öruggt væri og hafði grun á að þær hefðu verið 2 en gat þó ekki fengið fulla vissu fyrir því.... Seinast þegar blesöndin sást, sá Haukur (úr landi) að hún var við hólmann og 2 ungar rétt hjá henni, en ekki gat hann gengið úr skugga um hvort hún mundi eiga þá, en eftir þetta hætti maður að heyra til hennar“. Þetta mun hafa verið rétt sunnan við Grímsstaði að sögn Ragn- ars Sigfinnssonar (bréf dags. 21.1.1983), eða 2,5 km fyrir norðan hreiðurstaðinn frá því fyrr um vorið. Það er því hugsanlegt, að fuglarnir sem urpu við Káraströnd hafi flutt sig norður að Grímsstöðum eftir mislukk- aða varptilraun á fyrri staðnum og jafnvel orpið aftur. Þá er að vísu óvíst, að um par hafi verið að ræða, þar sem ekki er útilokað að stakur kvenfugl geri sér hreiður og verpi. Sá möguleiki er einnig fyrir hendi, að ungar hafi klakist úr hreiðrinu við Káraströnd og fjölskyldan flutt sig norður undir Grímsstaði. Frekari upplýsingar um þetta varp er ekki að hafa. Hér á eftir fer skrá yfir þær bleshæn- ur sem mér er kunnugt um að hafi sést hér á landi allt til og með árinu 1980: 1. Reykjavík (eða nágrenni), síðla hausts 1819. Tvær náðust. Faber (1822). 2. Grindavík, Gull, apríl 1821. Faber (1822). 3. Garður, Gull, 31. desember 1840. Náð. Jónas Flallgrímsson (1841, dagbók). 4. Barðaströnd, V-Barð, haust 1852. „Veiddist". Ari Finnsson. Benedikt Gröndal (1853-54). 5. Reykjavík?, byrjun árs 1856. Náð, sagður í eigu Englendings. Kruper (1857). 6. Útskálar í Garði, Gull, 1858. Náð. Newton (1863). 7. ísland, 1876-77? Á þessum árum fékk Hinn lærði skóli í Reykjavík bleshænu að gjöf frá nemanda, Árna Þorsteinssyni (sjá Skýrslu skólans skólaárið 1876-77). Hörr- ing skoðaði tvo hami í skólanum árið 1907 og er þessi fugl að líkindum annar þeirra (Hörring 1907, dagbók). f Menntaskólan- um í Reykjavík er nú (1985) varðveitt ein bleshæna, sem gæti verið þessi fugl (hún er ómerkt, en stendur á svipuðum stalli og aðrir íslenskir fuglar í safninu). 8. ísland, 1880-81? Andrés Fjeldsted gaf Hin- um lærða skóla í Reykjavík bleshænu á þessum árum, en hún var í lélegu ástandi (sjá Skýrslu skólans skólaárið 1880-81). Hörring (1907) skoðaði tvær bleshænur í safni skólans árið 1907, og er þessi fugl sennilega annar þeirra (sbr. nr. 7). Við skoðun á safni Menntaskólans í Reykjavík 1985 kom í ljós, að þar er aðeins ein bles- hæna og er hún í góðu standi. Er því varla um þennan fugla að ræða. Honum hefur því verið hent. 9. Við suðurströndina, 21. desember 1882 (d imm). Benedikt Gröndal (1886, 1901) seg- ir að sér hafi oft verið boðnir fuglar þessar- ar tegundar og hafi hann keypt allmörg eintök, m.a. ofangreindan fugl. Þeim hefði öllum verið safnað við suðurströndina, sumar, haust og vetur, en ofangreindur fugl er sá eini þeirra sem er tímasettur. 10. Eyrarbakki (Hraunsá), Árn, nóvember 1888. Nielsen (1918). 11. Ölfus, Árn, 6. desember 1888. Náð. Niels- en (1918). 12. Víkingavatn í Kelduhverfi, N-Þing, 1889. Par með 7 egg (ad ZM37919, 7 egg í RM). Frekari umfjöllun í texta. 13. Eyrarbakki, Árn, 10. nóvember 1891. Náð. Nielsen (1918). 14. Seyðisfjörður, S-Múl, haust 1893 (RM nr.140, hent fyrir 1941). 15. Eyrarbakki (Hraunsá), Árn, 15. janúar 1894. Náð. Nielsen (1918). 16. Flói, Árn, janúar 1894 (RM nr.141?, hent fyrir 1941). Hörring (1908). 17. Hafnarfjörður, janúar? 1894 (RM). Ham- ur týndur. 18. ísland, janúar? 1894 (RM nr.142, hent fyrir 1941). Var færður Náttúrugripasafn- inu 30. janúar 1894. 19. Eyrarbakki (Hafliðakot), Árn, 1. nóvem- ber 1894. Náð. Nielsen (1918). 20. Eyrarbakki, Árn, 20. nóvember 1894 (ZM, Hörring no.113). P. Nielsen. 21. Eyrarbakki (Hraunsá), Árn, 12. septem- ber 1896 (ZM, Hörring no.114). P. Nielsen. 22. Selvogur, Árn, 5. nóvember 1896 (ZM, Hörring no.115). P. Nielsen. Skv. skrán- ingu hams í Khöfn er fuglinn sagður fund- inn á Eyrarbakka, en skv. dagbók Hörr- 146
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.