Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 65

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 65
Ritfregn ORÐASKRÁ UM EÐLISFRÆÐI, STJÖRNUFRÆÐI OG SKYLDAR GREINAR - DRÖG Ritstjóri: Porsteinn Vilhjálmsson. Útgefandi: Orðanefnd Eðlisfræðifélags ís- lands, 1985. Nýyrðasmíð á sér langa hefð á íslandi. Mikið starf og merkilegt var unnið á nítj- ándu öld af þeim mönnum er þá rituðu um raunvísindi. Er tæknin hóf innreið sína í atvinnulíf landsmanna í upphafi þessarar aldar varð brátt nauðsyn að fjalla um ýmis tæknileg efni, svo sem vélfræði og raf- magnsfræði á íslensku. Á þessum sviðum þurfti að gera tæknileg efni skiljanleg al- þýðu manna svo að ekki stoðaði að sletta. Líklegt er, að lágt menntunarstig lands- manna hafi hér stuðlað að hreinleika máls- ins. Þetta orðsmíðastarf var að mestu unn- ið af verkfræðingum og þýðendum alþýð- legra vísindarita. Afraksturinn birtist skýrt í nýrðasöfnum, sem gefin voru út af menntamálaráðuneytinu um miðbik aldar- innar og í hinu mikla raftækni og ljósorða- safni orðanefndar rafmagnsverkfræðinga. Á síðustu árum hefur fjöldi íslenskra menntamanna margfaldast á örskömmum tíma og nýyrðasmíð orðið að eins konar trúarbrögðum. Flest fagfélög fræðinga hafa orðanefndir á sínum snærum. Eins og áður virðist verkið ganga einna hraðast hjá þeim, sem næst standa atvinnulífinu. Til marks um það má nefna útgáfu tölvuorða- safns árið 1983. Þessi trúarbrögð eru að mínu viti ágæt, þótt í sumum tilvikum virð- ist þau hafa leitt menn á villigötur. Fyrst ber að nefna, að tungumál er til þess ætlað, að menn geti gert hver öðrum hugsanir sínar skiljanlegar. Málið er ekki skrautgripur til sýningar og sönnunar þess, hve vel við höfum haldið á arfleifð Snorra Sturlusonar. Málið er brúkunarhestur. Orð sem standa dauð og ónotuð í orða- skrám eru einskis virði. Við nýyrðasmíð ber því að hafa í huga, að orðin eru ætluð til notkunar. Það er því að öðru jöfnu kostur en ekki löstur á nýyrði, ef það líkist erlendu orði sömu merkingar. Málpjatt sem felst í, að ekki megi nota erlenda orðstofna í íslensku er tungumálinu ekki til framdráttar. Þó er mikils um vert að hafa í huga, að ýmis fræðiorð á íslensku geta skýrt merkingu sjálfra sín vegna gegnsæi málsins, þegar tilsvarandi orð á erlendu máli eru ógegnsæ öðrum en grískulærðum. Hér hygg ég að sé höfuðréttlæting ís- lenskrar nýyrðasmíði. Enn má nefna, að lítið gagn er að safni íslenskulegra orða ef hugsunin er reyrð í viðjar erlendrar tungu. Höfuðskylda ís- lenskra vísindamanna við tunguna hlýtur að vera að hugsa og rita um fræði sín á íslensku og skiptir þá litlu, hvort einstakir orðstofnar eru af útlendum uppruna eða ekki. Beiting orða er með öðrum hætti í íslensku en t.d. ensku og surr; erlend fræði- orð er með öllu óþarft að þýða með einu íslensku orði. Málið verður því ekki sveigt til umfjöllunar um vísindi nema með frum- legum ritsmíðum um þau efni á íslensku. Orðasmíð undanfarinna ára meðal há- skólamanna, svo sem eðlisfræðinga, stærðfræðinga og líffræðinga, hefur að miklu leyti mótast af nauðsyn þess að halda uppi kennslu í þessum greinum á íslensku í Háskólanum. Sú orðaskrá, sem hér er til umfjöllunar er af þessu tagi. Ritstjóri nefnir í formála, að reynt hafi verið að taka í skrána þau orð, sem koma fyrir í námi að B.S. prófi í eðlisfræði. Lauslega áætlað virðist skráin hafa að geyma á milli þrjú og fjögur þúsund orð. Náttúrufræðingurinn 56(3), bls. 163—164, 1986. 163
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.