Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1986, Blaðsíða 72

Náttúrufræðingurinn - 1986, Blaðsíða 72
4. verðlaun: Ólafur Jónsson, Digra- nesvegi 42, Kóp. Myndirnar voru til sýnis að loknum aðal- fundi og verðlaun afhent. Sem fyrstu verð- laun var bókin Hestar og Gamlar þjóðlífs- myndir önnur verðlaun. Ljósmyndavörur gáfu tvær Fuji litfilmur í 3. og 4. verðlaun. ÚTGÁFUMÁL Sem kunnugt er lenti tímarit félagsins í útideyfu um nokkra hríð og var það eitt helsta baráttumál stjórnar að kippa því í liðinn. í febrúar 1985 komu 3. og 4. hefti 53. árgangs Náttúrufræðingsins út í einu lagi og nokkru síðar kom 54. árgangur út í þrennu lagi. Síðan rak hvert hefti 55. ár- gangs annað uns hið fjórða kom út fyrri hluta janúar s.l. Par rneð er útgáfa Nátt- úrufræðingsins komin í rétt horf. Vonandi tekst nú að halda í horfinu og gefa fjögur aðskilin hefti út árlega eins og löngum hefur verið stefnt að. Á liðnu ári kom 10. árgangur Félags- bréfsins út fjórum sinnum. Sigurður Frið- finnsson fjölritaði bréfið og Ágúst H. Bjarnason ritstýrði því. í tengslum við Hornstrandaferðina gaf félagið út lítinn bækling eftir Hauk Jó- hannesson, Kristin Hauk Skarphéðinsson og Eyþór Einarsson. Var hann afhentur ferðalöngum ókeypis. Til nýmæla má teljast, að félagið réðst í að gefa út veggmyndina „Flóra íslands“ eftir Eggert Pétursson í samvinnu við Ferðamálaráð íslands. Félagið eignaðist 2000 eintök og annaðist sölu á þeim. Gekk hún framar vonum og vakti verðskuldaða athygli. NÁTTÚRUFRÆÐISAFN Innan félagsins hefur áhugahópur starfað frá því í október 1984 og unnið ötullega að því að vekja athygli ráðamanna og almenn- ings á ófremdarástandi Náttúrugripa- safnsins. Margir fundir hafa verið haldnir og þar lagt á ráðin, hvernig þoka megi þessu máli áleiðis. Einn angi þessa starfs hefur verið sá að halda s.k. náttúrufræði- daga síðasta sunnudag í hverjum mánuði frá því í maí. Þessir dagar hafa tekist með ágætum og þátttaka yfirleitt verið allgóð. Allan veg og vanda að þessu framtaki hafa haft Einar Egilsson og Sólveig Georgsdótt- ir. Þau hafa varið ómældum tíma til þessa verks og jafnframt notið stuðnings ýmissa aðila. Eru þeim svo og öðrum færðar þakk- ir fyrir ötula baráttu. Fullvíst má telja, að fyrir tilstuðlan þessa áhugahóps skipaði Ragnhildur Helgadótt- ir, fyrrverandi menntamálaráðherra, opin- bera nefnd til þess að fjalla um málefni Náttúrugripasafnsins. Nefndin er undir forsæti Ævars Petersens, forstöðumanns Náttúrufræðistofnunar íslands, en auk hans sitja í henni tveir fulltrúar mennta- málaráðuneytisins, fulltrúar frá Reykjavík- urborg og Háskóla íslands, fyrrverandi oddviti áhugahóps um byggingu náttúru- fræðisafns og formaður Hins íslenska nátt- úrufræðifélags. Nefndin hefur þegar haldið nokkra fundi og væntanlega skilar hún áliti sínu fyrir sumarsólhvörf. AÐALFUNDUR Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifé- lags fyrir 1985 var haldinn laugardaginn 15. febrúar 1986 í stofu 101 í Lögbergi. 25 manns komu á fundinn. Fundarstjóri var kjörinn Sveinn Jakobsson og fundarritari Kristinn Einarsson. Formaður minntist látinna félagsmanna og flutti skýrslu stjórnar um störf félagsins. Gjaldkeri las upp endurskoðaða reikn- inga, sem voru samþykktir. Síðan var gengið til kosninga. Ágúst H. Bjarnason gaf ekki kost á sér til endur- kjörs og var Þóra Ellen Þórhallsdóttir kjör- in formaður í hans stað. Að þessu sinni gengu Bergþór Jóhannsson og Ingólfur Einarsson úr stjórn. Bergþór var ófús að sitja áfram en Ingólfur gaf kost á sér. í stjórnina voru kjörin Ingólfur Einarsson og Eva Þorvaldsdóttir. Þar eð varamaður, Ingibjörg Kaldal, sem gegnir störfum Ax- els Kaabers, var aðeins kosin til eins árs, var hún endurkosin í stjórn til næsta aðal- fundar. Nýkjörin stjórn er þá þannig skipuð: Þóra Ellen Þórhallsdóttir, formað- ur og aðrir stjórnarmenn: Eva Þorvalds- dóttir, Ingibjörg Kaldal, Ingólfur Einars- 170
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.