Náttúrufræðingurinn - 1988, Page 40
HESTGERÐISMÚLI
-=—Tertíer blágrýtismyndun __________ Mót myndananna Múlamyndunin
' Tertiary Basalt Formation ~~ Bottom of Múli Formation órT' Múli Formation
8. mynd. Hestgerðismúli og útbreiðsla Múlamyndunarinnar (teikn. Petrína Jakopsson
eftir ljósm. og skissu höfundar). Hestgerdismúli and the exent of the Múli Formation.
stað vestan í fjallinu er 10-15 m þykkt
basaltlag milli neðsta jökulbergsins og
lagskifta túffsins. í neðsta jökulberg-
inu er nokkuð um gabbrósteina, sumir
eru allstórir hnullungar. Efsti hluti
jökulbergsins er sums staðar hrærður
saman við gosmyndunina.
Eins og þegar hefur verið drepið á,
er stuðlaberg mjög áberandi í vestur-
jaðri Múlamyndunarinnar og er Falla-
stakkanöf þar fegurst. Hún blasir við
vestan frá séð, þar sem hún gnæfir
hátt í fjallsbrún með lóðréttum súlum
í miðju, sem eru nokkrir tugir metra á
hæð og alsettar þverrákum, „meitil-
förum“ (chisel marks) (9. mynd), sem
eru svo einkennandi fyrir stuðlaberg,
en sem einnig koma víða fyrir í nú-
tíma hraunum. Út til hliðanna verða
stuðlarnir bognir og breytast loks í
kubbaberg sem bendir til þess að
kólnun hafi verið hröð.
Á norðvestur horni fjallsins eru
túfflögin á kafla um 20 m þykk og í
þeim miðjum mislægi. Hallar neðstu
lögunum um 24° til vesturs. Ekki
verður annað séð en að þetta sé alger-
lega staðbundið. Ofan á Fallastakka-
nöf er jökulberg, en óhægt er um vik
að skoða það og mót þess við stuðla-
bergið í sjálfri fjallsbrúninni, eins og
sjá má á 3. mynd.
JARÐSAGA
I hnotskurn gæti jarðsaga þessa af-
markaða svæðis verið eitthvað á þessa
leið, án þess að tilraun sé gerð til að
tímasetja atburði:
1) Ár og lækir grafa dal í blágrýtis-
myndunina. Setlög myndast í daln-
um.
2) Jökull fyllir dalinn og leggst yfir
landið.
3) Eldgos verður undir jökli og Múla-
myndunin verður til.
4) Jökul leysir af fjallinu og Múla-
myndunin byrjar að rofna.
5) Jökull leggst yfir í annað sinn, á
síðasta kuldaskeiði.
6) Nútími. Land verður jökullaust
fyrir um 10.000 árum.
HVERNIG VARÐ
MÚLAMYNDUNIN TIL?
Þess var áður getið að Walker og
Blake (1966) töldu að þessi myndun
væri hliðstæð við Dalsheiði í Lóni, en
þeir álitu hana vera hraun, sem runn-
ið hefur niður dal undir jökli, en sú
94