Náttúrufræðingurinn - 1935, Qupperneq 26
70 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
.................Illllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll..
en tvo mjög skæða: Indíánana, sem veiða hann með spjótum, og
krókódílana.
Önnur tegund lungnafiska (Ceratodus forsteri) á heima í
Ástralíu. Áður hefir hann verið víða um þá heimsálfu, eftir beina-
leifum að dæma,en nú er hann aðeins til í tveimur smáám,sem heita
Burnett og Mary, í Austur-Ástralíu. Frá öðrum lungnafiskum er
hann strax auðþekktur á því, að allur líkaminn er alþakinn stóru,
sköruðu hreistri, sem nær alla leið út á ugga. Þjóðverjinn Semon
segir þannig frá lifnaðarháttum hans (eftir Brehm) :
Ástralíu-lungnafiskur (Ceratodus forsteri).
„Á meðan eg dvaldi við ána Burnett, veiddi eg marga lungna-
fiska, bæði á öngla og í net. Bezta ráðið til þess að veiða hann er
það, sem svertingjarnir nota. Þeir hafa tvö dálítil net, sem þeir
geta haldið á, sínu í hvorri hendi. Netin eru ofin í bogamyndaðan
ramma, sem líkjast hálfri gjörð. Nú kemur negrinn að polli, þar
sem hann telur lungnafiska hafast við. Fyrst veður hann út í poll-
inn, og lætur sig litlu skipta, þótt hann sé svo djúpur, að hann
verði að fara á svarta kaf. Reynir hann nú að koma auga á lungna-
fisk, þar sem hann heldur kyrru fyrir í leirnum, en leitar jafn-
framt fyrir sér með fingrum og tám. Þegar hann hefir komið
auga á dýrið fer hann upp úr pollinum til þess að sækja veiðar-
færin, og nú byrjar veiðin. Svertinginn reynir nú að lauma báð-
um netunum alveg að fiskinum, frá báðum hliðum, og svo allt í
einu skellir hann þeim saman, og grípur fiskinn, sem verður á
milli rammanna. Það gefur að skilja, að þessa aðferð væri ekki
gott að nota við laxveiðar, eða við aðra sprettharða fiska, en
Ástralíu-lungnafiskurinn er ekki sprettharður, heldur alveg öf-
ugt ákaflega seinlátur og værugjarn. Hann er svo spakur, að
maður getur snert hann með höndunum, án þess að hann kippi
sér upp við það, aðeins ef varlega er farið að. En ef að kemur að
honum styggð, tekur hann undir sig „stökk“, en legst brátt fyrir
aftur, skammt frá. Hann getur synt fljótt og er mjög sterkur, og
Femst því oft undan netinu, og getur jafnvel stundum brotið öngla,