Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1935, Qupperneq 28

Náttúrufræðingurinn - 1935, Qupperneq 28
72 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN I I I I I I I I I I I I I I I I 1 I I I | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | i | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | | £, Um uppruna lungnafiskanna vita menn ekki mikið. Þeir eru svo ólíkir sín á milli, að minnsta kosti að því er tekur til innri byggingar, að það verður að skipa þeim í þrjár ættir, og verður ein tegund í hverri. Þó líkjast Afríku-lungnafiskurinn og Suður- Ameríku-lungnafiskurinn meira hvor öðrum, en Ástralíu-lungna- fiskurinn líkist hinum frændum sínum. Þótt þeir séu allir skyldir,. þá er þó hugsanlegt, að þeir eigi ekki. sameiginleg upptök, heldur séu svona líkir vegna þess að þeir hafa gengið í sama skóla, — þeir eru steyptir í sama móti, kjörin hafa mótað þá eins. Annað dæmi um það, hvernig kjör og lifnaðarhættir geta skapað sviplíkar tegundir úr ólíku efni, eru þau hryggdýr, sem geta flogið. Af hryggdýraflokkunum fimm, fiskum, froskdýrum, skriðdýrum, fuglum og spendýrum, hafa aðeins tegundirnar í þremur síðargreindu flokkunum tileinkað sér fluglistina. Að vísu geta flugfiskarnir „stokkið“ spölkorn upp úr vatninu og svifið nokkra metra í lofti, áður en þeir nema við yfirborð sjávar á ný, en eiginlegt flug hafa þeir aldrei lært, og það hafa yfirleitt engir fiskar. Sama máli er að gegna með froskdýrin, þau hafa heldur aldrei getað flogið. Þær tegundir fugla, sem ekki geta flogið, eru hreinasta undantekning frá reglunni, og eru nú margar hverjar að verða aldauða, og sumar alveg eyddar. Ennfremur hafa ýmsir ættbálkar spendýra gert tilraun til þess að senda fulltrúa til flugs.. Mörgum hefir heppnazt það að nokkru leyti, en engum tekizt til fulls, nema skordýraætunum, sem hafa getið af sér nýjan ættbálk, leðurblöðkurnar. Þær eru einu spendýrin, sem geta flogið. Skrið- dýrin voru einu sinni voldugt stór- veldi hér á jörðunni, áður en að fuglarnir, en einkum spendýrin: komu til sögunnar, en nú er ekki eftir nema svipur hjá þeirri sjón, sem áður var. Þegar þau voru uppi á sitt bezta, áttu þau einnig einn ættbálk, semrgat ferðast um Þessi mynd sýnir vænggerð loftÍð’ hann var flugeðlurnar. flugeðlu, leðurblöku og fugis. Sumar þeirra voru 4—6 metrar

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.