Náttúrufræðingurinn - 1935, Qupperneq 50
94 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifr
helztu vinum mannkynsins. Bókin á erindi til allra, sem meta afrek manns-
andans, sigur hans á þeim erfiðleikum, sem tálma framför mannkynsins,
allra, sem virða góðar bækur.
Arsrit Skógræktarfélags íslands, 1935.
Efni: Hákon Bjarnason: Nokkrar leiðbeiningar um trjárækt.
Valtýr Stefánsson: Nokkur orð um trjárækt til heimilisprýði.
H. J. Hólmjárn: Orfoka land.
Á. Friðriksson: Skógurinn sem heimkynni dýra og jurta.
M. Júl. Magnús: Fjárframlög til skógræktar.
Hákon Bjarnason: Fregnir úr Fossvogsstöðinni.
M. Júl. Magnús: Félagsstarfsemi.
Ritið er, eins og að vanda, hið prýðilegasta að öllum frágangi. I skóg-
ræktarfélaginu eru nú á fjórða hundrað meðlimir.auk um 30 æfifélaga.
Jóhannes Askellsson: Some Remarks on the Distribution of the Species
Zirphaea crispata L. and Purpura lapillus L. on the North-Coast of Iceland-
Vid. Medd. fra Dansk Nat. For. Bind 99, Köbenhavn, 1935.
Höfundurinn birtir hér athuganir sínar á útbreiðslu bergbúans og ná-
kuðungsins við strendur Islands. Hefir hann fundið báðar bessar tegundir
lifandi við norðurströnd Islands, en þær eiga aðallega heima í hlýja sjón-
um, og áður var haldið, að þær væru hvorki til lifandi við Norður- né Aust-
urland.
Johs. Humlum und S. L. Tuxen: Die heissen Quellen auf Hveravellir
in Island. Geografisk Tidsskrift, 38. Bind. 1—2 Hefte, Köbenhavn, 1935.
Höfundarnir voru hér á ferð í fyrrasumar, og mældu þá upp hvera-
svæðið á Hveravöllum. í ritgjörð þessari lýsa þeir hverurium, og gera grein
fyrir þeim breytingum, sem á þeim hafa orðið á síðustu árum, samkvæmt
rannsóknum annarra.
Freyr, mánaðarblaíS um landbúnað, útgefandi Búnaðarfélag Islands,
ritstjóri Metúsalem Stefánsson.
Um margra ára skeið hefir Fiskifélag íslands gefið út mánaðarblað
um mál þau, er sjávarútveginn varða, en hingað til hefir verið skortur á
slíku blaði fyrir landbúnaðinn. Nú er bætt úr þeim skorti, sem var á slíku
riti, og verður ekki annað sagt, en að vel sé farið af stað Ritið er í liku
broti og ,,Ægir“, af því eru þegar komin tvö hefti. I þeim eru greinar um
mörg mál, sem snerta landbúnaðinn.