Náttúrufræðingurinn - 1941, Blaðsíða 70
64
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
STEINDÓR STEINDÓRSSON frá Hlöðum:
FLÓRA MELRAKKASLÉTTU
Sumarið 1934 ferðaðist ég um Melrakkasléttu til gróðurrann-
sókna. Gerði ég þá athuganir bæði á almennu gróðurfari, gróður-
félögum, útbreiðslu þeirra og lífsskilyrðum, og aflaði mér yfirlits
um flóru héraðsins. Um gróðurfarsrannsóknirnar gaf ég út rit-
gerðina ,,Om Vegetationen paa Melrakkasljetta i det nordöstlige
Island“ og birtist hún í Botanisk Tidsskrift 43. bd. Kaupmanna-
höfn 1936. Af sérstökum ástæðum gat flórulisti ekki fylgt þeirri
ritgerð, hefir hann síðan legið hjá mér. En engu að síður tel ég
réttmætt að láta hann birtast, þar sem fátt er um héraðsflórur hér
á landi, og engin þeirra frá norðausturlandinu. Rannsóknasvæðið,
sem flórulisti þessi nær yfir, er Melrakkaslétta frá Hólsá að austan
og inn að Efri-Hólum í Núpasveit að vestanverðu. Þó er rann-
sóknarsvæðið einkum fram með ströndinni, enda þótt ég einnig
færi allmikið um innra hluta Sléttu.
Tegundirnar eru taldar hér í sömu röð og í Flóru íslands,
II. útgáfu, en latnesk heiti eru eftir Ostenfeld and Gröntved:
Flora of Iceland and the Færoes. Til rúmsparnaðar hefi ég sleppt
ættaheitum.
Magister Johs. Gröntved, bókavörður í Kaupmannahöfn, hefir
gert mér þann ómetanlega greiða að nafngreina fyrir mig vand-
greindar tegundir og éndurskoða ýmsar af nafngreiningum mín-
um, og kann ég honum fyrir það beztu þakkir.
1. G E4 Tungljurt (Botrychium lunaria) Alg.
2. G E4 Tóugras (Cystopteris fragilis). Fremur sjaldgæft.
3. G A1 Skjaldburkni (Polystichum loíichitis). Mjög sjald-
gæfur. Blikalónsdalur.
4. G E4 Klóelfting (Equisetum arvense) Alg.
5 G E2 Vallelfting (E pratense) Alg.
6. G E2 Mýrelfting (E. palustre). Alg.
7. HH E2 Fergin (E. fluviatile). Sj. Raufarhöfn, Höskuldsnes,
Blikalón.
8. H A3 Beitieski (E. variegatum). Víða.