Náttúrufræðingurinn - 1941, Blaðsíða 100
94 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
og loftið er fyllt áfengum ilmi hans. Fiðrildi svífa milli trjá-
toppanna og yfir lynginu iðar allt af suðandi lífi skordýra.
Randaflugur og vespur leika sér á sveipum hvannanna. Loftið
titrar en fjöllin í fjarska og ásar og stapar við vatnið spegla
sig í sléttum fleti þess.
Fuglar setja líka svip á hólmann. Spörfuglar vagga sér í trjá-
greinum. Endur og gæsir byggja stundum hreiður í lynginu.
Á vatninu synda lómar cg himbrimar og rjúfa stundum kyrrð-
ina ásamt með öldugjálfri og þyt í skóginum.
Eiðahólmi er einn af demöntum í náttúru Fljótdalshéraðs og
þótt víðar sé leitað. Hann er eyðiev, sem þó er byggð miklu
fjórra og gróskumeira lífi en landið í grennd, þar sem manns-
höndin og munnar sauðfjárins hafa hjálpað eýðingaröflum eld-
gosa og vorkulda til að halda vaxtarviðleitni gróðursins í skefj-
um með átakanlegum árangri.
E. t. v. er það einmitt þetta, sem vekur mesta athygli og jafn-
vel aðdáun á þessum litla stað. Allt hans græna, fjölbreytta og
ilmandi líf myndar svo sterka andstæðu við vatnið, gráa mela
og gróðurvana ása umhverfis það. Gesturinn trúir varla sínum
eigin augum né öðrum skynjunum og spyr sjálfan sig: Getur
þetta verið satt? Hefir maðurinn farið slíkum eyðingareldi um
ísland á liðnum öldum, alls staðar, þar sem hann hefir komið
bolmagni við?
Ég held, að öllum, sem koma í Eiðahólma, hitni um hjartað,
þegar þeir hugsa til þess, að svona fagurt gæti ísland verið
allt, milli fjöru og fjalls, ef mennirnir ekki stæðu í vegi þess.
Og mundu eigi slíkar hugleiðingar geta verið mönnum hvöt
dáða? Eiðahólmi er einskonar Eden, þar sem jurtirnar hafa átt
friðland. Hann er helgistaður. Þar má enginn skerða blað á björk
né rífa upp blóm með rótum. Staður þessi á að njóta friðunar,
umhyggju og verndar.
Þá getur hann á ókomnum tímum sýnt gestum sínum mynd
af því, hvernig landið á að vera, og minnt þá á heilaga skyldu
allra íslendinga: Hann getur hvatt þá til að klæða Iandið skógi.
Gróður í Eiðahólma.
Aðalbláberjalyng (Vaccinum myrtillus).
Augnfró (Euphrasia officinalis).
Axhæra (Luzula spicata).
Beitilyng (Calluna vulgaris).