Náttúrufræðingurinn - 1941, Blaðsíða 79
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
73
Útbreiðsluflokkarnir eru teknir eftir riti Dr. H. Mölholm
Hansens, Studies on the Vegetation of Iceland 1930. Hann skiptir
þar íslenzkum plöntum í tvo meginflokka hánorrænnar (arkt-
iskar) plöntur A, og evrópskar plöntur E. Þessum flokkum er
síðan skipt í undirdeildir, sem merktar eru með tölum, þannig,
að hærri tala bendir til norðlægari útbreiðslu. Norðlægasti
flokkurinn er A3, en E1 sá suðlægasti. í áðurnefndu riti eru
reiktiuð út hundraðshlutföll lífmynda og tegundaflokka í ýms-
um landshlutum og eftir hæðarbeltum. Enda þótt margt sé við
þær niðurstöður að athuga vegna ófullnægjandi þekkingar á
útbreiðslu tegundanna, nota ég samt þessar tölur til saman-
burðar vi<? hlutfallstölur flokkanna á Melrakkasléttu í eftirfar-
andi töflum, þar sem ekki er annað að hafa í því efni.
Hlutföll lífmynda.
Ph Ch H * G HH Th
Allt landið ........ 1,1 15,2 52,4 10,6 9,2 11,5
Melrakkaslétta . . . 0,5 17,2 50,2 13,3 9,4 9,4
Austurland ......... 0,8 18,0 51,2 12,5 7,4 10,2
Norðurland ......... 1,0 16,6 52,3 11,0 9,1 10,1
Til þess að samræmi sé milli talnanna, er byrkningum sleppt
hér eins og í riti dr. H. M. H., hlutfallstölur þessar eru því aðeins
reiknaðar af 203 tegundum, hins vegar eru tegundaflokkarnir
reiknaðir af allri tölunni, 216. Allar tölurnar sýna hundraðshlut-
föll.
A E A3 A2 A1 E4 E3 E2 E1
Allt landið 40,3 59,7 14,6 13,6 12,0 15,2 14,1 14,1 16,3
Melrakkasl. 46,7 53,3 16,2 18,9 11,6 20,4 19,9 9,7 3,3
Austurland 45,2 54,8 16,5 17,3 11,4 16,9 17,3 13,2 7,4
Norðurland 44,4 55,6 16,3 15,1 13,0 17,2 15,1 13,0 10,3
Lífmyndayfirlitið sýnir, að flóra Sléttunnar er nokkuð frábrugð-
in því, sem er á öllu landinu, einkum hlutföll Ch. og G., sem er all-
miklu hærra hér en á landinu almennt. Ch% liggur hins vegar mitt
á milli Norður- og Austurlandsins, en G% er hærra á Sléttu en í
báðum þessum landshlutum. Mun það stafa af því, hve mýrlendi
er útbreitt þar, en í því eru einkum heimkynni jarðplantnanna.