Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1941, Blaðsíða 61

Náttúrufræðingurinn - 1941, Blaðsíða 61
N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN 55 hrossanál, og sums staðar eldri engjar með mýrastör og gulstör. Þar sem gróðurinn á annað borð hefir náð fótfestu, er hann gróskumikill, en fáskrúðugur. Jafnvel jöklinum hefir blöskrað ógestrisni sona sinna og dætra, sandanna og vatnanna og boðið gróðrinum bústað við sinn breiða, en kalda og brigðuga faðm. Að þessu hafa plönturnar í neyð sinni orðið að lúta, og faldar nú helluhnoðrinn jökulröndina gullnum faldi, en skelþunnt malarlag skilur hann frá ísnum. Um 250 metra frá jökulbrún fann jeg og álitlegan gróðurblett uppi á jöklinum, á 5—10 cm. malar- og moldarlagi. Grassvörðinn myndaði vallarsveifgras og varpasveifgras og önnur túngrös. Kví- skerjabóndinn hefir haft þarna-hrúta á vorin; þar verpir og veiðibjalla. Umræddar gróðureyjar eru á Breiðamerkurjökli. Vatnagróður er fáskrúðugur, ár eru flestar gróðurlausar jök- ulár, en stöðuvötn flest gróðurlítil nema helzt í Borgarhöfn; þar eru skrúðgrænar fergintj,arnir með marandi síkjarmara og lófót, þráðnykru og fjallnykru, og þar sem er grynnst er fitja- finnungur. Heiðagróður er og mjög fáskrúðugur, enda fjöllin flest há og brött með stórgrýttum skriðum og klettum og skammt til jökla. Helzt er að finna heiðagróður uppi af Skaftafelli í Öræfinu og á Borgarhafnarfjalli í Suðursveit, með fífutjörnum og sefmóum með bjöllulyngi. Aðalgróðursvæðin eru við rætur fjallanna, sem blasa við hádegissólinni. Neðst eru veitur, þar sem hálmgresið teygir koll- inn upp úr mýrstör og horhóf, þ. e. horblaðka og hófsóley í nánu samfélagi, en í túnfætinum ofan við veituna bannsyngur sláttu- maðurinn snarrótina. Ofan við túnin taka við vallendis-, blómlendis- og skóglendis- brekkur með ilmreyr, bláklukku, blákollu og blágresi og gulvíðis- eða birkikjarri með einstaka reynitré á milli. Sums staðar hefir birkið náð álitlegri hæð eins og í Bæjarstað, í Skaftafelli og Svínafelli. í giljunum í Skaftafelli og Svínafelli nær gróðurinn æfintýralegum blóma. Þar hreykir sér hinn glæsilegi sigurskúf- ur undir laufþaki reynitrjánna. Múnkahettan baðar sig í fínum úða frá fossinum, og upp úr þykkum, rökum mosa, á flúðum, teyga sig gullbrá, stjörnusteinbrjótur og dúnurt, og hátt uppi í klettunum situr klettafrúin á sínum græna blaðkrans með drif- hvít blóm á rauðum stöngli. Af sjaldgæfari plöntum má nefna eggtvíblöðku úr Skafta-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.