Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1941, Page 31

Náttúrufræðingurinn - 1941, Page 31
N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN 125 um land um að æðarvarpi hnigni. Þyrfti að hefja á því gagn- gerða rannsókn, ef hægt væri að komast fyrir orsakir þess og finna við því ráð. Bjargfugl verpir þar nokkuð. Yfirleitt er fugla- líf mikið í eynni. Upp frá bæjarvíkinni er ræktað mikið tún og frítt og nær það næstum yfir þvera eyna. Sunnan túnsins eru engjar, en bithagi fyrir norðan. í dældum eru víða tjarnir og pollar. Stærsta tjörnin er í norðurjaðri túnsins og 'heitir Vatnið. Öll er eyjan úr blágrýti, og er víða í henni fagurt stuðia- berg, einkum að suðvestanverðu. Að ofan eru blágrýtisklappirn- ar fágaðar og sér þar í enda stuðlanna. Senriilega hefur jökull gengið þar yfir á sínum tíma. Að landslagi og jarðmyndun er eyjan beint framhald Ögurtanganna fyrir sunnan Djúpið. Jarð- vegur á eynni er víðast alldjúpur og óvíða sér þar í nakinn klett eða stein nema rétt við sjóinn. Jarðvegur er járnblandinn, og vatn í brunni gulmórautt af járnsamböndum. í Æðey er bæði fagurt og friðsælt. Aldrei mun þó vera feg- urra um að litast en um varptímann, en því miður var varpinu að mestu lokið, þegar ég kom þar. Æðey er algróin að kalla, nema einstöku hólkollar og björgin við sjóinn. Gróðurfar hennar er þó einhæft, þegar frá er tekin fjaran, tjarnir og björgin. Er hún annað hvort vaxin valllend- is- eða mýrargróðri. Á hæstu hólunum nálgast valllendið þó mosaþembu, og allsstaðar er mikill mosi í rót. Eftirtektarvert er hversu runngróður vantar algerlega. Hin eina runnkennda planta, sem nokkra verulega útbreiðslu hefir í eynni, er gras- víðir.1) Þetta mun að nokkru leyti stafa af byggðinni. Allt land eyjarinnar er annaðhvort nytjað til heyskapar eða beitt mikið. Þá mun og gróður troðast mikið af fuglum, en hins vegar fá frá þeim mikinn áburð, en allt er þetta óhagstætt runngróðri. Sennilega á og hið raka sjávarloft sinn þátt í því. Þegar þarabeltinu sleppir er fjaran sjálf að mestu gróður- laus. Þó vaxa þar hrímblaðka,2) tágamura3) og blálilja4) á tveim- ur stöðum. í víkurbotnum er sums staðar örlítill fitjagróður með ríkjandi sjávarfitjung.5) Lægðir allar eru vaxnar votlendisgróðri. Mestur hluti þessa votlendis er flói. Yfirborðið slétt, en vatn mjög ofarlega í gras- sverði eða flýtur jafnvel yfir hann. Þar sem blautast er, eru 1) Salix herbacea. 2) Atriplex hastata. 3) Potentilla anserina. 4) Mer- tensia maritima. 5) Puccinellia maritima.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.