Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1943, Side 6

Náttúrufræðingurinn - 1943, Side 6
140 NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN l'jölda tegnndanna. 2. Mæla live liátt hver tegnnd vex yfir sjó. Þar, sem þetta hvorutveggja heimtar mikla nákvæmni, þá hefi ég venjulegast ferðast fótgangandi á sjálfu rannsóknarsvæðinu, Það er því ekki að furða, þó lítið hafi unnizt hvert árið, og það því fremur sem landið er víða torvelt til rannsókna, sér í lagi há- lendið. Ég liefi ekki síður lagt áherzlu á háfjallaathuganir en lág- lendis, því þar er einnig að vænta fáséðra tegunda. Enda verður ekki hjá fallgöngum komizt, ef framkvæma á tíðar rannsóknir. En í þessu tilliti hefir óblíða veðráttunnar orðið mér stundum þung i skauti. Þegai- svo er komið, að allar landsins byggðir og óbyggðir hafa \erið nákvæmlega yfirfarnar á þennan liátt, þá fyrst, en ekki fyrr höfum við fengið viðunandi þekkingu á liáplöntugróðri landsins, og getum þá fyrst farið að rökræða um landnám og útbreiðslu- leiðir tegundanna okkar. Sennilega erum við enn ekki komin svo langt, að við þekkjum til hinztu tegunda æðri plöntur þessa lands. Og tivað mun þá vei’a um hinar lægri ? Tvo síðusu áratugi hefir þó mikið skipazt í þessum efnum, þar sem að minnsta kosti 19 nýjar íslenzkar háplöntur liafa fundizt. Af þeim hefi ég fundið 8 teg- undir, og skal ég stutllega geta um fund hverrar fvrir sig, og í þeirri tímaröð, sem þær eru fundnar. /. Stellaria graminea L: (Akurarfi). Sumarið 1923 tók ég fyrst eftir þessari plöntu. Óx hún í stórum stíl í brekkum niður frá liúsi þáverandi héraðslæknis Steingríms Matthíassonar. Leit ekki út fyrir annað, en plantan liefði vaxið þarna um margra ára skeið. I íslandsflóru sinni frá 1881 getur. Chr. Grönlund þess, að þessi sama tegund hafi vaxið á Akureyri 1861; er því eklcerl ósennilegt, að hún sé allt að því aldargamall innflytjandi, enda þótt heftnar sé ekki getið í Flóru íslands eftir Stefán Stefánsson. Nú hefir tegund þessi fundizt á allmörgum slöðum, bæði norðanlands og sunnan, og berst hingað sennilega árlega með grasfræi. Er hún því orðin góður og gegn íslendingur. 2. Equisetum silvaticum L. (Skógarelfting). Tegundina fann ég fyrst sumarið 1925 í allháu birkikjarri í Heydal inn frá Mjóafirði við ísafjarðardjúp. Fann þar aðeins fá eintök. Siðan hefi ég livergi á ferðum mínum getað fundið teg-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.