Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 17
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
151
57. Limosella aquatica L. var borealis Less.
Hornafjörður á n. sl. ’36.
58. Veronica fruticans .Taeq.
Reykjaskógur í Fnjóskadal ’33. Afhrigði með ljósrauð-
um krónublöðum.
59. V. officinalis L.
Skarð í Dalsmvnni N. ’33. Hornafjörður, á fám stöðum
’36. Hálsar og Skeggjabrekkudalur í Ólafsfirði N. ’41.
60. Utricularia minor L.
Auðnir í Öxnadal ’38 og Dagverðareyri N. ’39.
61. Prunella uutgaris L.
Dagverðareyri, Bitrugerði og Glerárgil N. ’39. Skeggja-
brekkudalur í Ólafsfirði ’41. Við laugavætur.
62. Lamium intermedium Fr.
Skriða i Hörgárdal ’38. Gamall fundarstaður, og er teg-
undin þar enn í fullu gengi.
63. Galium trifidum L.
Flatey á Skjálfanda ’37. Aðeins fundist á 1 stað.
64. Galium uliginosum L.
Sumarið 1939 athugaði ég úlbreiðslu legundarinnar i
Kræklingahlíð N. Komst ég þá að raun um, að liún vex
svo að segja óslitið frá Glerá norður til Sólborgarháls.
Þar fyrir norðan fann ég hana ekki. Plantan vex þarna
á deiglendi í þéttum, áberandi flækjum á breiðu svæði,
allt að 250 m. v. s.
65. Campanula rotundifolia L.
Holtsmóar í Svarfaðardal. N. ’41.
66. C.. uniflora L.
Fornastaðafjall og Draflastaðafjall í Fnjóskadal ’33.
67. Antennaria alpina Gaertn.
Lundsfjall og Merkjahnjúkur í Fnjóskadal ’33.
68. Aracium paludosum Monnier.
Algengur í Ólafsfirði ’41, en sjaldan í blóma.
69. Hieracium thulense Dablst.
Vémundarstaðir i Ólafsfirði ’41.
Með þessu yfirlili mínu, sem er að mestu leyti framhald, i
einstökum atriðum endurtekning hinnar ýtarlegu ritgerðar
Steindórs Steindórssonar: Gróðurrannsóknir Islands II (Nátt.fr.
I. h. XIII. ágr.), er þegar fengin heildarsýn yfir alla nýja fund-
arstaði íslenzkra háplantna fram til ársins 1942. Að vísu gætu