Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 20
154
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
lætur liana síðan í kassa og var hún alin þar í nokkra daga.
Var henni sleppt lausri á kvöldin, og flaug hún þá um her-
bergið og festi sig síðan einhvers staðar á veggnum, og þar
liékk hún unz hún var tekin aftur og látin í kassann. Þar sem
hún fannst eru 200 m frá sjávarmáli. Lá hún þar í loðnu grasi
— hlaut og úfin. Fyrst í stað var liún máttlítil, en liresstist
við húshlýjuna og næringu, sem henni var gefin. Helzt fékk
hún ánamaðka og mjólk, og virtist hún lialda allgóðri heilsu
til 17. s. m., en þá var hún send með góðri ferð til Reykja-
víkur.“
Við athugun á leðurhlökunni, eftir að liún var dauð, sá ég
fljótt, að af evrópskum leðurblökutegundum gat ekki verið
um aðra tegund að ræða en tegund þá, sem á vísindamáli
heitir Nyctalus (Vesperugo) noctula. En vegna þcss að ein-
kenni dýrsins samrímdust ekki að öllu leyti lýsingum á þess-
ari tegund, datt mér í hug að athuga, hvort hér gæti ef til
vill verið um ameríska tegund að ræða. Við athugun þessa
kom hrált í ljós, að svo reyndist rétt vera, og heitir tegundin
Atalapha cinerea, og er hún náskyld Evróputegundinni, sem
getið er hér að ofan. Tegund þessi er allalgeng i N.-Ameríku.
í Bandaríkjunum er hún algengust í norðurríkjunum, en sjald-
gæfari í mið- og suðurríkjunum og sjaldgæf í vestustu ríkj-
unum. 1 Kanada ná lieimkynni hennar frá Nova Seotia til
Manitoha. Leðurhlaka þessi er á stærð við stærstu leðurblöku-
tegundir Evrópu. Lengd dýrsins er um 12 cm, en þar af er
halinn um 5 cm. Háraliturinn er gulbrúnn, en hárin eru hvít
eða hvitgrá í oddinn og dýrið sýnist því vera hélugrátt. í Am-
eríku er leðui'hlökutegund þessi kölluð The Hoary Bat, og er
nafnið dregið af háralitniun (hoary = liélugrár eða hæru-
skotinn).
Þetta er í fyrsta skipti sem leðurblöku hefir orðið vart hér
á landi. Ekkert verður sagt um það með vissu, hvernig hún
hefir komizt hingað. Lítil líkindi eru samt til að liún liafi
getað komizt alla leið af sjálfsdáðum. Líklegra er að hún
hafi borizt með skipi (eða flugvél?), að minnsta kosti mik-
inn hluta leiðarinnar.