Náttúrufræðingurinn - 1943, Side 42
176 NÁTTÚRUFRÆÐINGUMNN
nú að Mendel hafði uppgötvað einn af niestu leyndardómum nátt-
úrunnar, — í kyrrð og ró í garði sínum. Hann hafði fundið undir-
stöðuatriði erfðalögmálanna, er fram koma við kynblöndun.
Mendel varð heimsfrægur maður. Ný stórkostleg starfssvið og
lækifæri blöstu nú við. Munkurinn í klausturgarðinum liafði opn-
að dyr nýrra undralieima. Ilann sýndi og sannaði hvernig eigin-
leikarnir ganga að erfðum frá kyni til lcyns. Siðar komust menn
í kynni við hinar snöggu, arfgengu breytingar, sem stökkbreyt-
ingar nefnast. Þá var farið að rannsaka frUmurnar til að freista
þess að finna hvar eiginlega örfin eða arfgjafarnir byggju og
eftir hvaða lögmálum nýir eiginleikar kæmu í Ijós. Jarðyrkjumenn
tóku að hagnýta þessar uppgötvanir og oft hefir siðan tekist að
skapa nýjar tegundir með þeim eiginleikum, sem ætlast var til
fyrirfram!
Svíar gerðu fyrstir manna tilraun til að framleiða bráðþroska
og frostlx)lið hveiti. Ameríkumenn fetuðu dyggilega í fólspor
þeirra. Sumir garðyrkjumenn urðu römmustu galdrakarlar á
sviði jurtákynbóta. Vestur í Kaliforníu framleiddi Lúther Bur-
Bank þyrnalausa kaktusa, steinlausar plómur, stór, hvít bróm-
ber, risalilju, dverglilju, jötnadraumsóley og ótal fleiri ný undra-
blóm. 1 Iiaslov, smábæ einum i Rússlandi, bjó arinar „galdra-
maður“, I. Michurin að nafni. Ilann ræktaði ávexti og grænmeti
og kynbætti það stórum til þess að það gæti þrifist í erfiðu lofts-
lagi. Hann færði Norður-Rússum ærna björg í hú: Jarðarher, hind-
ber, kirsuber og epli. Tegundirnar nýju þrifust miklu norðar en
áður þekktist. Siðar létu Rússar bæinn heita í höfuðið á horium í
þakklætisskyni (Michurinsk).
Þjóðverjar tóku brátt að hagnýta sér vísindin dyggilega í þjón-
ustu jarðyrkjunnar. Þýzkt útsæði hefir lengi verið heimsfrægl
og mjög éftirsótt vara. Ferdinand Jost stundaði kynbætur á rúgi
í 45 ár — frá 1879 til dauðadags — á búgarði sínum í Pettkus.
Hann vann lilca að kynbótum margra annarra jurta. T. d. ræktaði
hann 45 kynslóðir af maís, úlfabaunum, fóðurflækjum og höfrum
og fékkst ennfremur við margar kynslóðir hesta og svína. En
frægastur' er Pettkus rúgurinn. Hann er nú ræktaður viða. T. d.
eiga 90% af þýzka rúgnum kyn sitt til lians að rekja á vorum dög-
um. Svíar kynbættu Pettkus-rúginn þannig, að liann hæfði Norð-
urlandaloftslagi. Er Pettkus.rúgur mikið ræktaður í Danmörku
og Sviþjóð.
Tilraunastöðin Svalöf í Svíþjóð er heimsfræg orðin. Þar hafa
verið sköpuð mörg kornafbrigði, sem gefa meiri uppskeru og eru