Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1945, Side 12

Náttúrufræðingurinn - 1945, Side 12
154 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN næsta Kötlugosi. Að þessu sinni skorti okkur þó flest, senr þurfti til slíkra rannsókna. Sunnudaginn 1. ágúst. Kl. 7 um morguninn var kyrrt verður, himinn skafheiður og 2 st. frost. Um nóttina hafði lágmarksmælir sýnt -f- 6.7 st. Þennan dag var ferðinni lieitið vestur á Fimmvörðuháls í skíða- skála Fjallamanna. Urðum ferðbúnir kl. 10.30, tókum stefnu austan- liallt á Goðabungu og hugðumst fá útsýn norður af jöklinum. Færi' var ágætt og sleginn því léttur í eftirdragi, en yfirborð jökulsins, undir nýju mjöllinni, var óslétt eins og stórt fleytingsþýfi. Það kom því fyrir, að sleðinn valt á hliðina, en ekki tafði það för okkar til muna. A sleðanum var f'yrst löng dráttartaug, sem fest var í báða sleðameiðana til þess að jafna átakið. I enda aðaltaugarinnar var fest fjórum einföldum þáttum. Voru tveir lengstir í miðið, en tveir styttri til beggja hliða. Flver maður hafði gjörð spennta um mjaðmir sér og dráttartaug sína festa aftan í. Þegar dráttur var á sleðanum, voru 7 m. milli fremri dráttarmanna og hinna aftari. Við Steinþór höfðum oftast lengri taugarnar, en Einar og Leó hinar. Einar hafði það þreytandi verk á hendi að halda reikning yfir vegalengdina, sem við fórum. Þegar við lögðum af stað, og taugarnar voru strengd- ar, festi liann auga á spor þess, sem á undan lionum gekk. Þegar hann kom sjálfur að sporinu, hafði hann gengið 7 m. og festi nú aftur sjónir á spori undanfara síns og þannig koll af kolli. Um hádegisbilið námum við staðar á aflíðandi hjalla norðan í Goðabungu, og blasti þá við bæði vítt og fagurt útsýni vestur og norður af. Norðan við bunguna var grunnur en allbreiður slakki, frá vestri til austurs, og virtist hann ná austur að Entu, en sunnan við hana sást á eitt eða tvö dökk sker í jöklinum. Norðan slakkans var lág og mjög aflíðandi jökulbunga, en norðaustur af henni enn önnur bunga, lág en breiðvaxin. Er þetta Merkurjökull, senr blasir við úr Fljótshlíðinni. Við skildum nú sleðann eftir og héldum norður yfir slakkann og yfir bungurnar báðar í norðaustlæga stefnu. Hallar allbratt niður af hinni nyrðri bungunni að svartri strýtu, er stendur á vestri barmi Entu. Kalla eg hann Entukoll. Enta er jökuldalur, djúpur og þröngur, er skerst inn í Mýrdals- jökul að norðan. Víða eru hamrar í brúnum. Fram úr gjánni kemur skriðjökull, sem breiðir úr sér hið neðra, og nær NV-liorn hans niður á Þórsmörk, en austurjaðarinn rennur saman við Emstrujökulinn. Jökulalda liggur ofan á ísnum þar sem þeir mætast. — Guðmundur

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.