Náttúrufræðingurinn - 1945, Blaðsíða 34
176
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
komlega fráhrindingarkrafti sínum. Á sama hátt má meðhöndla
föt, gler og önnur efni.
Þess tíma er ef til vill ekki langt að bíða, þegar menn þurfa ekki
lengur að óttast að verða votir, þó að þeir lendi í rigningarskúr og
hafi gleymt yfirhöfninni heima. Ef fötin hafa verið látin lianga
augnablik í silikon-gufu, þá hoppa droparnir af þeim jafnskjótt og
regnið fellur á þau, og engin væta sýgst inn í fötin. Silikon-húðin er
svo sterk, að hún þolir að fötin séu þvegin eða hreinsuð á annan
liátt, svo að silikon-meðhöndlunin getur skeð í eitt skipti fyrir öll.
Gluggarúður, sem fengið hafa á sig silikon-húð, haldast miklu
lengur hreinar en aðrar rúður. Hver vatnsdropi fellur hér strax af
en á glerinu ná vatnsdroparnir oft að þorna og skilja þá eftir óhrein-
indi. Á bílrúðum gefur þessi lnið miklu lietra útsýni í regni og
vondu veðri, en hér þarf þó að endurnýja húðina við og við. Ef vatns-
glasi er gefin silikon-húð að innanverðu, þá veltur vatnið út úr því
eins og kvikasilfur, og enginn dropi verður eftir í glasinu. Ef diskar
og bollapör eru meðhöndluð á þennan hátt, getur maður sparað sér
alla uppþurrkun.
Silikon-húðunin á eflaust framtíð fyrir sér á óteljandi sviðum.
Nú þegar er flugtæknin tekin að nota sér þessi nýju efni. Þegar flug-
vél rennir sér niður í gegnum þétt regnský, þá kemur það oft fyrir,
að svo mikið vatn sest á postulíns-einangrarana, sem halda loftnetinu
að þeir verða leiðandi, og útvarpstæki flugvélarinnar ónothæft. Þetta
má hindra með því að gefa einangrurunum silikon-húð. Vatnið
lirynur þá af þeim, og útvarpið helzt ótruflað.
Einn af verðmætustu eiginleikum silikonefnanna er, live vel Jrau
þola liita. Einnig eru Jrau ágætir einangrarar. Sii orka, sem rafmótor
getur framleitt, er að miklu leyti undir því komin, hve mikinn hita
má bjóða einangrunarefninu. Ending mótorsins er einnig oft undir
endingu einangrunarinnar komin. Með Jiví að taka leiðslujnæðina
af venjulegum þriggja hestalia mótor og setja aðra í staðinn, sem
eru einangraðir nreð silikon, má fá mótoroinn til að gefá tíu hestöfl,
án Jress að einangrunin skemmist við hitann. Ef til vill verða afkiist
rafmótoranna ekki alltaf Jrrefölduð, en notkun silikon-einangrunar
ætti þó að hafa í för með sér verulega framför á rafmótorum. Minni,
léttari og endingarbetri mótorar verða mögulegir.
Þessi sparnaður á Jrunga er sérstaklega dýrmætur í flugvélum. í
stórum flugvélum er fjöldi af rafmótorum, spennubreytum og öðr-
um raftækjum, sem öll má gera mikið léttari með Jiví að nota silikon-
einangrun. Farangurinn eða benzínmagnið getur Jrá vaxið að sama