Náttúrufræðingurinn - 1945, Blaðsíða 19
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Ifil
Kötlujökull og umhverfi hans. Hafursey fremst á miðri mynd, Vatnsrásarhöfuð við
SV-horn jökulsins, Huldujökull og Huldufjöll þar norður af. — Teikn. Steinþ. Sig.
vikri. Virðist jökuljaðarinn ná alla leið norður að Sandfelli, og sér
ofan á fellið yfir jökulsporðinn h. u. b. í hánorðri frá NA-horni
Hafurseyjar. IIins vegar er snjólaus liryggur frá Eystri-Kötlukolli
niður undir Sandfell. Norðvestur af Hafursey sér í klettahlíð suð-
austan í Mýrdalsjökli, en vestan við Kötlujökulinn. Eru það Hnldu-
fjöll. Norður af þeim, uppi við Kötlukverkina, eru 2—3 hnukar
litlir upp úr jökli, og ákváðum við að reisa mælingavörðu á einum
þeirra næsta dag, ef veður leyfði.
Sunnudaginn 15. dgúst. Veður var orðið kyrrt og bjart um morg-
uninn. Lögðurn við af stað frá tjaldstað okkar kl. 9 og héldum upp
með hinni eiginlegu Múlakvísl, sem kemur ofan úr fögrum og slétt-
um dal, sem gengur norðvestur í Höfðabrekkuafrétt á bak við Lér-
eftshöfuð. Norðan dalsins tekur við brött fjallshlíð, og gengum við
þar upp hjá Þakgilshöfði og norðan við Mælifell. Þegar upp á brún-
ina er komið, liggur leiðin um aflíðandi heiði, efir rimum milli
djúpra gilja, og síðan um urðaröldur upp að jökuljaðri, skammt
austan við Jökulfell. Þaðan blasir við Hábunga á suðurhrygg Mýr-
dalsjökuls. Er hún býsna breið og aflíðandi til suðausturs, en smá-
hjöllótt. Leið okkar lá skammt vestur af Huldufjöllum. Verður
djúpur hamradalur milli þeirra og heiðarinnar. Fellur jöktdfoss
niður í dalbotninn að vestan og skriðjökull austur eftir dalnum, unz
II