Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 14
15(3
náttúrufræðíngurinn
Næsta morgun komum við að Skógum um fótaferðatíma. Lét Páll
bóndi þegar sækja dót okkar, en við fórum með áætlunarbíl til
Reykjavíkur.
Árangur ferðarinnar
1. Uppdráttur. Steinþór Sigurðsson hefur mælt og gert uppdrátt
af sunnanverðum Mýrdalsjökli, og er það í fyrsta skipti, sem „Kötln
svæðið“ hefur verið mælt. Rétt fyrir ófriðinn höfðu verið teknar
flugmyndir af jöklinum á vegunr Geodætisk Institut í Kaupmanna-
höfn. Kortin voru ekki fullgerð, þegar stríðið skall á. Eftir gögnunr
þeim, sem fyrir Jrendi eru, nrun Mýrdals- og Eyjafjallajökull vera
unr 828 km.2 að skriðjöklum meðtöldunr. Eyjafjallajökull er vart
yfir 80 km.2 og verður Mýrdalsjökull, austan Skógárbotna, því unr
750 km2. A uppdrætti Þorv. Tboroddsen eru jöklar þessir unr 1000
km2 og á uppdrætti Bjarnar Gunnlaugssonar um 1100 km2 sanr-
kvænrt athugunum, senr Ágúst Böðvarsson lrefur gert að tilblutun
vegamálastjóra og þeir liafa góðfúslega látið mér í té.
2. Landslag. Við höfunr jafnfranrt fengið fullt yfirlit yfir það,
hvernig unrlrorfs er á Kötlusvæðinu nrilli gosanna, en þangað hafa
engir fræðimenn komið fyrr — í björtu veðri.
Landslagi á sunnanverðunr Mýrdalsjökli er svo háttað, að suður-
brún jcikulsins er nrjór, ávalur hryggur, er nær frá Klifandijökli
austur á Höfðabrekkuafrétt. Það er Jressi hryggur, senr blasir við úr
Mýrdahrum, upp af heimafjöllunum. Hæsta bungan, Hábunga, h.
u. b. upp af Hafursárjökli austan Gvendarfells, er 1486 m. yfir sjáv-
armál. Þegar komið er upp á suðurhrygg jökulsins, blasir við breið,
skeií umynduð jökulkvos norður undan. Hallar bratt niður í liana af
suðurhryggnum, en hæðarmunurinn er varla yfir 160 m. í NV
blasir við Goðabunga, hæsta bunga Mýrdalsjökuls. Er hún 1493 m.
yfir sjó, eða 40—50 m. lægri en Eyjafjallajöknl 1. Austan Goðabungu
er allmikil jökulslétta, sem hækkar mjög hægt norður eftir, unz hún
takmarkast af ávölum jökulhrygg, sunnan dalslakkans mikla, sem
Guðmundur Einarsson kallar Entugjá.
Lítið eitt austar en í hánorðri af Hábungu rís önnur jökulbunga,
sem dregur að sér athygli, af j)\'í að ])ar sér í dökkan blett upp úr
hjarninu. Þetta er sennilega bungan, sem Jón prestur Austmann
gekk á 1823, og vil ég kalla hana Austmannsbungu. Hún er 10 km.
norðaustur af Goðabungu og 1375 m. á hæð.
Fast við suðurhrygginn liggja dalverpi úr jökulkvosinni bæði til