Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1945, Blaðsíða 24

Náttúrufræðingurinn - 1945, Blaðsíða 24
166 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Vegalengdirnar voru mældar lauslega með dráttartaug sleðanna. Stangabunki, sem við höfðum skilið eftir við flutninginn upp eftir, var ekki langt frá síðustu stöng, sem við Gunnar settum niður. Tók- um við stengurnar á sleðann og héldum heirn á leið. Veður var stjörnubjart, stillt og skafheiðríkt. Hjarn var yfir öllu, en hélt ekki sleðanum með hlassinu; varð okkur drátturinn mjög erfiður. Skild- um við sleðann loks eftir um 2 km. frá tjaldinu kl. tæplega 3 um nóttina. Vorum við þá orðnir mjög þreyttir. Hinir félagarnir voru þá komnir heim lyrir skömmu. 16. sept. Bjart um morguninn en blés upp með norðanhríð kl. 8.30. Síðar um daginn linaði frostið og varð bleytuhríð og versta veður. Lágum við um kyrrt. Gunnar Hjaltason var nokkuð lasinn, líklega vegna þreytu. 17. sept. Um morguninn var sæmilegt veður en þoka og snjókoma öðru hverju. Fórum við Oli Björn af stað með sleða að stangabagg- anum, tókum þar nokkrar stengur og merktum þrjá staði. Varð að fara allt eftir áttavita. Versnaði veður mjög, er á daginn leið, svo að við urðum holdvotir. Eftir heimkonnina fórurn við Friðrik og sótt- um það, sem eftir var af stangabagganum og settum upp eitt merki í leiðinn. Enn fremur settum við upp hátt mastur hjá tjöldunum, en það var fyrir loftnet, þvx að Gunnar hafði meðfei'ðis feiðaviðtæki. 18. —20. sept. voru innilegudagar. Var versta veður báða fyrri dag- ana, rok og rigning eða slydda, en frysti á mánudaginn. Var þá bjart til loftsins en mikill skafrenningur. Á laugardaginn var tæplega fært milli tjaldanna. 21. sept. Bjart veður og nokkurt frost um morguninn. Við Gunnar fórum norður á (Austmanns)bungu til að mæla, en þeir Óli Björn og Friðrik settu stangir við rætur skriðjökulsins. Að mælingunni lokinni fórum við Gunnar suður fyrir skriðjökulinn, og mældi eg þar til sólarlags. Var þá frost orðið allmikið, um 12 stig. 22. sept. Bjart og kalt um morguninn. Tökum upp tjöldin og setj- um á sleðana. Mæli við tjaldið. Tekur að skafa um kl. 9 og verður síðan blindhríð. Komumst af stað um hádegi. Sækist mjög erfiðlega. Laus snjór liggur í gárum á hrjúfu hjarni. Dótið er á tveim sleðum og verðum við að selflytja, þar sem livor sleði reynist of þungur fyrir tvo, meðan allt er á fótinn og veðrið frekar í fangið. Undir kvöldið lægði, en jxá var orðið dimmt, svo ferðin sóttist seint niður jökulinn. Var ekki komið að birgðatjaldinu fyrr en um miðnætti. Var borðað, en síðan héldu jreir félagar til byggða og komust með bíl til Reykja- víkur næsta dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.