Náttúrufræðingurinn - 1945, Side 31
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
173
mælingatæki norður á Austmannsbungu (1375 m.). Gengum um
tjaldstaðinn frá sept. 1943 og leituðum rækilega — en árangurslaust
— að stangabagganum.
Steinþór mældi af klettasnösinni á Austmannsbungu i góðu
skyggni. — Haustið 1943 sást Sandfell ekki af klettinum fyrir snjó-
bunka austan í bungunni, rétt lijá klettasnösinni. Varð hann þá að
færa sig um nokkra metra upp fyrir klettinn til að sjá fellið. Nú
sást fellið vel af snösinni — og Hafursey líka — í gegnum skarðið
milli Kiitlukollanna, en aðeins örlítil hyrna. — Virtist sem snjóbunki
hefði sigið fram í suðurhalla bungunnar, og brún hennar því lækk-
að nokkuð. Allmikil sprunga var meðfram klettinum, og sá á brún-
leitt snjólag í börmum hennar röska tvo metra undir yfirborðinu.
Vikurskaflinn á hábungunni var talsvert hærri en í fyrra sumar.
Vikurlagið var 15 cm. þykkt, en þar undir var glær og harður ís.
Austmannsbunga er mjór hryggur h. u. b. frá N til S í framhaldi
af hrygg eða hávaða norðvestur úr Kötlukollunum. Er bungan brött
að norðaustan, og mikil jökulbreiða austur af henni, er hallar niður
að Sandfelli. — Af bungunni ganga jökuldeilin milli Kötlujökuls og
Emstrujökuls í boga norðvestur á bóginn og síðan vestur eða suð-
vestur í Goðabungu.
A Austmannsbungu var reist snjóstika í sept 1943. Lá hún nú
flöt á sama stað og virtist nýlega fallin.
Um kl. 23 um kvöldið fórum við með annan sleðann undir far-
angri suðvestur á jökulbrún og skildum þar eftir. Færi gott. Komum
aftur í tjaldstað kl. W/2 um nóttina.
Undir miðaftan tóku að sjást leiftur eða rosaljós öðru hverju við
suðurbrún jökulsins. Um miðnættið kom hver glampinn af öðrum.
Veður var þá bjart á hájöklinum, en bólstrar miklir ylir Suður-
hryggnum. — Síðar fréttum við, að blossar þessir hefðu sézt af Rang-
árvöllum, í Mýirdal og víðar. Komu upp getgátur um Kötlugos, og
fluttu dagblöðin í Reykjavík þær með feitu letri.
Laugardaginn 12. ágúst. Um morguninn fóru þeir Steinþór og
Árni Þ. suður að þrengslum til að mæla („skera inn“) vörður. Við
Einar reistum snjóstöng rétt hjá turninum. Var hún 6.5 m. upp úr
snjó, fest með sex stögum, tvö og tvö í hverjum fleti. Stöng og stag-
festur voru grafnar 2 m. í snjó.
Vindur var norðlægur um daginn, 3—5 vindstig, og éljagangur,
en ekki teljandi snjókoma, sólskinsglætur á milli. Mynclaðist skari
eða hörzl á snjónum með skásettar ísþynnur móti sól, en undan