Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 32

Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 32
174 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN vindi. Hiti var 0.5—1 st. undir frostmarki, en herti með kvöldinu. Kl. 23 var N-strekkingur, 5—6 vindstig og 3 st. frost. Sama daginn og við komum upp á jökulinn, var sett niður tréstika rétt hjá tjöldunum til að mæla leysinguna. Alls varð leysingin frá 4. ág. kl. 16 til 12. ág. kl. 18, eða á röskum átta sólarhringum 38.7 cm. Svarar það til 4.8 cm. á sólarhring eða nærri 150 cm. á mánuði. Þess má og geta. að veður mátti lieita mjög milt alla þessa daga, og festi aldrei snjó, svo teljandi væri. Sunnudaginn 13. ágúsl. Um miðnættið fórum við að Iiúa okkur til ferðar og komumst af stað með allan fai'angur kl. 11/£ um nóttina. Veður lygndi um það leyti, og varð heiðríkt á jöklinum, en dökkur kólgubakki gi'úfði. yfir norðurhrygg jökulsins. Kl. 7i/2 um morguninn vorum við komnir með allt dót og báða sleðana niður á jökuljaðar. Lögðum dótið í klyfjar á 5 hesta, en varla voru nema 50 kg. á hvern. Um 10-leytið héldum við áfram ofan að Sólheimakoti með allmiklar byrðar, svefnpoka, mat og föt. Komum þangað um 13-leytið, og varð Sigurður bóndi feginn að sjá okkur lifandi eftir tröllasögur þær, sem gengið liöfðu af Kötlugosi síðustu dagana. Seinna um daginn fór ég lit að Sólheimajökli og mældi breytingar við jökulmerki. Heim aftur kl. 21.30. Sólskin og blíðviðri allan dag- inn fram til kl. 20. Þá tók að þykkna í lofti og byrjaði að rigna kl. 21. Mánudaginn 14. ágiíst. Rigning alla nóttina. Sváfum allir í stóra tjaldinu, sem staðið hafði í Sólheimakoti meðan við vorum á jökl- inum. Um morguninn snennna fóru þeir Einar og Árni með mjólk- urbíl til Reykjavíkur. Sigurður sótti dótið upp að jökli. Við Stein- þór gengum frá því til flutnings. Morguninn eftir, 15. ág., kom mjólkurbíll lrá Kaupfélagi Skaft- fellinga í Vík og flutti okkur að Selfossi. Þaðan komumst við með öðrum mjólkurbíl til Reykjavíkur samdægurs. Stuðningsrit: Th. Thoroddsen: Geschichte der isliindischen Vulkane. Khöfn 1925. Safn til sögu íslands, IV. bindi. Þorvaldur Thoroddsen: Landfræðisaga Islands. Ferðabók Sveins Pálssonar. KiHlugosið 1918, skýrsla Císla Sveinssonar sýslumanns. Vatnajökull, Scientific Restdls of the Swedish-Icelandic Investigations 1936—1938. Geografiska Annaler, Stockholm 1943.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.