Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 3
Sigurður Þórarinsson:
Herbert múnkur og Heklufell
Á ofanverðum áttunda tug tólftu aldar dvaldist í hinu fræga
cisterciensaklaustri í Clairvaux (Clara vallis) í Frakklandi kapellán,
sem Herbert hét eða Herbertus. Herbert þessi hafði áður verið ábóti
í Mores í héraðinu Longres og varð síðar erkibiskup í Torres á Sar-
díníu.
Á meðan Herbert dvaldist í Clairvaux-klaustri, samdi hann rit
mikið, sem heitir Liber miraculorum eða Bók undranna. Þetta rit-
verk hefur varðveitzt í þremur handritum, en þó ekki í Jieild nema
í einu þeirra, sem er pergament-handrit frá klaustrinu Aldersbech
í Passau og varðveitt í ríkisbókhlöðunni í Munchen (Cod. lat.
Monac. 2607 4to). Þetta handrit er frá því snemma á 13. öld.
í ritinu Chronicon Clarevallense, frá þriðja tug 13. aldar, er sagt,
að Herbert hafi ritað bók sína árið 1178. En í ritgerð, sem birtist
í sænska tímaritinu Scandia 1931, hefur prófessor Lauritz Weibull
í Lundi sýnt fram á, að bókin hafi ekki verið rituð öll á því ári,
heldur á árunum 1178—1180.
Bók herra Herberts er merkileg frá íslenzku sjónarmiði. Hún hef-
ur nefnilega að geyma elztu frásögn af Heklugosi, sem til er, og
einnig elztu frásögnina af jökulhlaupi, að óljósum frásögnum Land-
námabókar e. t. v. undanteknum.
Þótt undarlegt sé, mun enginn íslendingur, og raunar enginn,
sem um íslenzka eldfjallasögu hefur ritað, liafa lesið þennan íslands-
kafla Herberts í lieild, fyrr en ég síðastliðið haust fékk gerðar af hon-
um ljósmyndir eftir handritinu í Múnchen og fékk Jakob Benedikts-
Myndir i ncestu opnu: Textasíðurnar 107v og 108r í Munchenhandriti bókar Herherts
frá Clairvaux: Liber miraculorum. Raunveruleg blaðliæð er 26.5 sm. — Cod. lat. Monac.
2607 4to, pp. 107v and 108r. lleduced size.