Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 10

Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 10
56 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Vesúvíus, og þegar hér var komið sögu, hafði Vesúvíus látið lítið á sér bæra um nokkrar aldir og þagnaði raunar að fullu í þrjár aldir nokkru síðar. Etna hafði um langt skeið verið áþreifanlegasta sönn- unin fyrir Helvíti („strompur vítis“). Gosin í Heklufelli voru því ný og ákaflega velþegin sönnun fyrir þeim vörmu vistarverum. Það er sigurhreimur í orðum Herberts: „Hver er nú svo þverbrotinn og vantrúaður, að hann vilji ekki trúa því, að til sé eilífur eldur, sem þjáir sálirnar?“ Hægt er að láta sér detta í hug, að fregnir af fyrsta Heklugosinu hafi borizt geistlegum í Franz frá íslenzkum skólabróður þeirra úr Svartaskóla, Sæmundi klerki Sigfússyni, sem upplifði þetta náttiiru- undur í nágrenni sínu sem miðaldra maður. En hann getur a. m. k. ekki verið heimildarmaður um Heklugosið annað, og raunar virðist liggja nærri að gizka á annan lieimildarmann, bæði um frásögnina af því gosi og öðru því, sem Herbert segir um ísland, en sá er Eskil erkibiskup í Lundi, kallaður Eskell eða Áskell í íslenzkum fornrit- um. Eskell var einn hinn merkasti þeirra manna, er sátu á erkibisk- upsstóli í Lundi, og hefur stundum verið nefndur fyrsti Evrópei Norðurlanda. Erkibiskup varð hann 1138 og hélt því virðulega em- bætti í nær fjóra áratugi. Eskell erkibiskup stóð í nánum tengslum við klaustrið í Clairvaux, hann kom jDangað 1151 og 1175 og þekkti persónulega stofnanda þess, blessaðan herra Bernharð. Og þegar hann lét af erkibiskupsembætti, 1177, fór hann til þessa klausturs og lifði þar til síns dauðadags, 25. ágúst 1181. í áðurnefndri undrabók Her- berts er saga Eskels skráð eftir forsögn hans sjálfs, og er sú ævisaga í ritinu nokkru á undan frásögnunum af íslandi. Eskell erkibiskup hefur haft sambönd við íslenzka kennimenn, meðal annars vígði hann Klæng Þorsteinsson til biskups í Skálholti árið 1152, en í bisk- upstíð hans gaus Hekla í annað sinn. Enda þótt Niðarós yrði erki- biskupssetur sama ár og Klængur var vígður, er ekki ólíklegt, að Klængur biskup hafi lialdið áfram einhverju sambandi við vígslu- föður sinn. Það eru því líkur fyrir, að Eskell liafi haft sagnir af Heklugosum, og e. t. v. sagnir sjónarvotta af öðru Heklugosinu, þeg- ar hann settist að í klaustrinu í Clairvaux, og er þá ólíklegt, að hann hafi ekki einhvern tíma fært undur hinnar afskekktu eyjar í tal við vin sinn Herbert, sem var einmitt að rita bók um undur. En frásögn Herberts er ekki aðeins um Heklugos. í síðari hluta hennar segir, að eldurinn hafi einnig ráðizt á hafið við ströndina og að hann hafi borið „með sér í flóði sínu gríðarstór fjöll og hæðir . . .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.