Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 13

Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 13
HERBERT MÚNKUR OG HEKLUFELL 59 verandi staðháttum. Meðfylgjandi mynd sýnir sævardýpið suður af Hjörleifshöfða, og eru 50, 100 og 200 m dýptarlínurnar dregnar eftir miklu fleiri dýptarmælingum en sýndar eru á kortinu. Mér sýnist ekk- ert líklegra en að dalur sá, Reynisdjúp, er skerst inn í landgrunnið, sé sá forni fjörður, livers botn horfði inn að höfðanum, en hefur síðan fyllzt að mestu leyti vegna framburðar í Kötluhlaupum. Mér virðist og, að frásögn Herberts styðji frásögn Landnámu, með því að lík- legt sé, að sá fjörður, sem liann nefnir, sé hinn forni Kerlingarfjörð- ur. Hafi þarna verið fjörður, er ekki ólíklegt, að þar hafi verið höfn, e. t. v. í vari við Hjörleifshöfða, sem eyðilagzt hafi í jökulhlaupi. En hvenær kom það hlaup? Úr því verður ekki skorið, en ekki vii'ðist mér ómögulegt, að það hlaup, sem Herbert hefur haft sagnir af, sé hið sama og Þorláks-saga greinir frá. Frásögnin í Þorláks-sögu ber það með sér, að talsverð byggð liefur verið á vesturhluta Mýrdals- sands, þ. e. vestan hinnar fornu Eyjarár, þegar það hlaup kom, sem deila Jóns og Þorláks biskups reis af. Eyðing þessarar byggðar í Höfðárhlaupinu getur vel verið orðin að eyðingu frægrar borgar og mannmargrar í frásögn hins franska kapelláns. Og hafi fjörður verið nærri Hjörleifshöfða, þegar stórhlaup fór yfir vestursandinn, hlýtur það hlaup að hafa fyllt þann fjörð að einhverju leyti, því að svo geypilegur er framburður Kötluhlaupa, sbr. myndun Kötlutanga í síðasta hlaupi. Frásögnin í Þorláks sögu bendir og fremur til þess, að þetta Höfðárhlaup hafi ekki verið alveg nýafstaðið, þegar l)iskup fór í sína yfirreið 1179, og er mögulegt, að hlaupið hafi orðið það snemma, að fregnir af því liafi borizt til Danaveldis, áður en Eskell biskup fór til Clairvaux í síðasta sinni. Allt eru þetta tilgátur, sem frásögn Herberts gefur tilefni til, og skal ekki fjölyrt meir um þær að sinni. En þess er að endingu að geta, að undir lok frásagnar sinnar nefnir Herbert, að liinn eilífi eldur sé einnig undir mararbotni og sjáist oft gjósa ákaflega upp úr hafsdjúpi. Hann virðist því hafa haft sagnir af neðansjávargosum undan ströndum íslands, og er þetta ekki aðeins elzta þekkta heim- ildin um slík gos, heldur er og hér um eldri gos að ræða en nefnd eru í öðrum heimildum. Elzta neðansjávargos, sem íslenzkir annálar geta um, er gos vestur undan Reykjanesi árið 1211. Er þeirrar elds- uppkomu getið í mörgum annálum og þess getið, að Sörli Kolsson liafi þá fundið Eldeyjar, en Oddaverja-annáll segir hann hafa fundið „Eldeyjar hinar nýju, en hinar horfnar, er alla æfi höfðu verið“. Síðan geta annálar margra gosa á sömu slóðurn á fyrri hluta 13. ald-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.