Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 17
AFLASVEIFLUR OG ÁRGANGASKII’UN
63
Fjökli og stœrö islenzkra fiskiskipa 1913, 1930 og 1930.
Number and sizc of Icelandic fishing vessels in 1913, 1930 and 1930.
1913 1930 1950
Mótovbálar Fjöldi 19 220 480
(stærri en 12 tonn) Heildarstærð, t. 429 5366 24.4 23576 49.1
Meðalstærð, t. 22.6
Togarar Fjölcli 18 39 52
Heildarstærð, t. 4257 12812 29043
Meðalstærð, t. 236 329 559
fóru enskir togarar 1400 veiðiferðir hingað, en 3049 árið 1931, og
var meðalfjöldi veiðiferða þeirra 2985 á árunum 1931—37. Meðal-
fjöldi veiðiferða hjá þýzkum togurum hingað til lands var á sama
tíma 1364. Á stríðsárunum 1939—45 tók alveg fyrir ferðir þýzkra tog-
ara hingað, og ferðafjöldi enskra togara var aðeins 16% af meðaltal-
inu 1931—37. Heildarfjöldi togaranna á íslandsmiðum á stríðsárun-
um var 19% af meðaltalinu 1931—37. Eftir stríðið hefur veiðiferð-
um útlendinga fjölgað ört, t. d. fóru enskir togarar 1653 ferðir hing-
að 1950, eða 55% af meðaltalinu 1931—37, og þýzkir togarar fóru á
sama ári 961 veiðiferð, eða 71% af meðaltalinu 1931—37. Nú er svo
komið, að heildarálag togaranna á stofninn er orðið rúm 60% af
meðaltalinu 1931—37, og er þá einungis rniðað við ferðafjöldann, en
í raun og veru er álagið mun meira, vegna þess að veiðihæfni skip-
anna hefur aukizt verulega.
Sveiilur í aílamagninu
1. mynd sýnir þorskveiði íslendinga og heildarþorskveiðina við
ísland á árunum 1906—50. Veiði íslendinga er ört vaxandi framan
af öldinni og nær hámarki árið 1930 og nemur það ár 261 þús. tonn-
um. Mikið af þessari aukningu er bein afleiðing aukinnar þátttöku
í útgerðinni. Eftir 1933 fer veiðin að minnka og nær lágmarki 1936,
og öfluðust það ár einungis 102 þús. tonn. Síðan eykst aflamagnið að
nýju og nær öðru hámarki 1944, og aflast þá 216 þús. tonn. Eftir það
fer veiðin minnkandi og er árið 1950 komin niður í 150 þús. tonn.
Heildarveiðin nær hámarki árið 1933 og er þá 518 þús. tonn. Eftir
það snarfellur hún fram til 1940, en á stríðsárunum tekur að mestu
fyrir veiðar útlendinga hér við land. Skýrslur um heildarveiði eru
til fyrir 1946, og er hún þá komin upp í 238 þús. tonn.