Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 24

Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 24
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 7Ó settir í reit 9—8. 75 hrygna í þriðja sinn og settir í reitinn 9—7, og loks eru 5 að hrygna í fjórða sinn, og eru þeir settir í reitinn 9—6. Auk þessa eru 168 fiskar, sem ekki var með öryggi hægt að ákvarða á gotbauga, og eru þeir settir í ?-reitinn. Af árg. 1936, sem nú er 15 ára, eru engir nýliðar, og eru flestir að hrygna í limmta og sjötta sinn og einn meira að segja í áttunda sinn. Af árg. 1931, sem nú er 20 ára, er einn að hrygna í þrettánda sinn. Lengst til hægri sjáum við aldursdreifingu kynþroska fisksins, og er árg. 1942 þar algerlega yfirgnæfandi með 49.8%. Næstur er árg. 1943 með 13.2%. Að því er snertir aldur við fyrstu hrygningu, þá eru 11.8% 7 ára, 35.5% 8 ára, 34.3% 9 ára og 7.0% 10 ára, eða samtals 88.6% á aldr- inum 7—10 ára. 52.2% eru nýliðar, 29.7% hrygndu í annað sinn, en einungis 5.6% í þriðja sinn, og stafar þessi mikli fjöldi af fyrstu og annarri hrygn- ingu af því, að stofninn er borinn uppi af 9 ára fiski og yngri. Hundraðshluti hinna einstöku gotflokka er nokkuð breytilegur frá einu ári til annars og í samræmi við þá árganga, er mynda stofninn hverju sinni. Hvað getum við nú sagt um aldursdreifingu næsta árs út frá þess- um upplýsingum? Við skulum þá t. d. athuga árg. 1942. Af honurn hrygna 5 í fjórða sinn, 75 í þriðja, 846 í annað, 1101 í fyrsta sinn. Dánartalan er 50% og á því að vera eftir helmingurinn af þessum fiskum 1952, eða 3, sem hrygna þá í fimmta sinn, 38 í fjórða, 423 í þriðja og 551 í annað sinn. En nú eru ekki allir einstaklingar þessa 9 ára fisks komnir í gagnið, heldur fáum við sem nýliða 10 ára gamla G/10 af þeim fjölda, sem hrygndi í fyrsta skipti 9 ára (kynþroskastuð- ullinn 9:10 = 0.60) eða 1101 X 0.60 = 661 fisk af árg. 1942, sem ný- liðar 1952. Fjöldinn verður því alls 3 -þ- 38 -þ- 423 -j- 551 -(- 661 = 1676, en var 2027 árið 1951, þ. e. árg. hefur minnkað um 17.3%. Þannig förum við með hvern árgang og leggjum útkomurnar saman og fáum út heildartöluna 4341, en talan, sem við gengum út frá 1951, var 3935, svo að fjöldi fiskanna hefur þannig aukizt um 10.3%. Aldursdreifingin 1952 á að vera þannig: 7 ára — 13.1%, 8 ára — 19.2%, 9 ára — 16.4%, 10 ára — 38.6%, af 7—10 ára fiski samtals 87.3%, en hitt dreifist á 13 aðra árganga. Meðalaldurinn á að vera 9.5 ár. Mynd nr. 6 sýnir samanburð á hinni áætluðu aldursdreifingu og raunverulegrar á árunum 1948—52, og sem sjá má, er samræmið gott.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.