Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 35

Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 35
MEIRA UM RAUÐHÓL 79 verið tekin alveg niður á ljósa leirinn, sem liggur jrar næst undir rauðamölinni, en lítt hróflað við honum. Austurbakki nýju geilar- innar, um 2 m hár, er sýndur á 1. mynd. Lögin, sem merkt eru III. og IV. (1. mynd), kollvörpuðu gervi- gígstilgátu minni. Jarðvegslagið III. hefur verið langan tíma að myndast, a. m. k. tugi ára, en sennilega aldir. Þetta hefur þó gerzt á tímabilinu, frá því er hóllinn hlóðst upp úr rauðamölinni (II.), þangað til Hvaleyrarhraun (V.) rann utan að hólnum og yfir yztu börð hans. Rauðamölin og hraunið geta því engan veginn verið til orðin í sama eldgosi. Hóllinn hefur hlaðizt upp í raunverulegu eld- gosi par á staðnum, löngu áður en hraunið rann að honum. Aftur á móti er í alla staði sennilegt, að öskulagið (IV.) hafi fallið í sama gosi og hraunið rann, því að ekki vottar fyrir jarðvegslagi yfir því, á milli þess og hraunsins. Lynggróðurinn, sem nú finnast leifar af í öskunni, Iilýtur að liafa átt sér rætur í moldinni undir henni, en af þeim hef ég engar leifar fundið. Moldarlagið og öskulagið finnast aðeins á fárra metra kafla í gryfjubakkanum. Hvarvetna annars staðar, þar sem til sést, hringinn í kringum gryfjuna liggur hraunið milliliðalaust á rauðamölinni, eins og ég hef teiknað á skýringarmynd í fyrri grein minni. Af því má marka, að mestur hluti Rauðhóls Iiafi verið ber melur, þegar hraunið rann kringum hann. En samt var þá lítil lyngtó með grunn- um moldarjarðvegi þarna í austurbrekku hólsins. Þar hefur nýfallna öskuna drifið saman í skafl í skjóli lyngsins, en rifið af jiar, sem mel- urinn var ber. Síðan rann hraunið yfir, ef til vill samdægurs, en sennilegar nokkrum dögum eða vikum síðar. Lyngstönglarnir kol- uðust af hitanum frá glóandi hrauninu, en gátu ekki brunnið vegna loftleysis. Ummyndnn þeirra í kol mun hafa bjargað þeim frá að rotna upp til agna. En ræturnar niðri í moldinni hafa sennilega ver- ið of fjarri hitagjafanum til að kolast, enda sér þeirra engin merki. Þessum litla gróðurbletti og moldinni, sem hann hlóð undir sig fyrir þúsundum ára, er það að Jrakka, að nú hefur fengizt úrskurður í mjög tvísýnu vandamáli. En til að fá Jrann úrskurð þurfti hvorki meira né minna en grafa burt mestallan hólinn. Ég býst við, að bæði ég og aðrir íslenzkir jarðfræðingar myndu telja Rauðhól eitt með hinum einhlítari dæmum um gervigíga, ef hann væri enn óskertur eins og fyrir 20 árum. Hin óvænta raun af gagngerri krufningu lians er ástæða til varúðar í að kveða á um, livað er gervigígur og hvað eiginlegt eldvarp.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.