Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 59
HIÐ ÍSLENZKA NÁTTÚRUFRÆÐIFÉLAG 1947-49
103
Útgáíustarfsemin
Félagsskýrslan. — Skýrslur fyrir árin 1944 og 1945, sem teknar voru saman af dr.
Finni Guðmundssyni, voru fullbúnar til prentunar fyrir aðalfund 1947. Á þeim aðal-
fundi var ákveðið að gefa út sameiginlega skýrslu fyrir árin 1944—1946 og rekja þar
það, sem gerzt hafði í liúsnæðismálum safnsins eftir fráfall Bjarna Sæmundssonar 1940,
og þar til er safnið var afhent rikinu. Varð við [retta dráttur á útkomu skýrslunnar, og
er skemmst frá því að segja, að hún fór ekki í prentsmiðjuna fyrr en rétt fyrir aðalfund
1949 og kom ekki út fyrr en 1951. Samtímis kom út skýi'sla um fuglamerkingar félags-
ins árin 1944—1946.
Acta Naturalia Islandica. — Svo sem getið var um i siðustu skýrslu, var prentun á sex
fyrstu ritgerðum þessa ritsafns lokið í marz 1947. Þá hafði Náttúrugripasafnið þegar
yfirtekið útgáfu þessa ritsafns, og er hún ekki síðan á vegum félagsins.
Ndttúrufrœðingurinn. — Árin 1947—1949 var Guðmundur Kjartansson ritstjóri Nátt-
úrufræðingsins. Kom tímaritið út í fjórum þriggja arka heftum árlega og var prentað
1 Prentsmiðjunni Hólum h.f. Oll þrjú árin naut tímaritið styrks úr félagssjóði Náttúru-
fræðifélagsins, kr. 3000 ár hvert.
Flóra íslands. — 3. útgáfan af Flóru íslands var nær fullbúin til prentunar í árslok
1946. I-laustið 1947 var byrjað að setja liana í prentsmiðju Odds Björnssonar á Akur-
eyri. Hafði Steindór Steindórsson, grasafræðingur, aðaltimsjón með prentuninni, en
grasafræðingarnir Ingimar Óskarsson og Ingólfur Davíðsson önnuðust prófarkalcstur
með honum.
Þar eð sýnt þótti, að það yrði Náttúrufræðifélaginu um megn að standa eitt sér
undir útgáfukostnaði Flórunnar og sjá um sölu hennar, var í samráði við ritstjórnina
gerður samningur við bókaútgáfuna Norðra á þeim grundvelli, að Náttúrufræðifélagið
teldist útgefandi bókarinnar og kostaði handrit, myndir og myndamót, en Norðri tæki
að sér útgáfuna í umboði félagsins, kostaði pappír, prentun og band og sæi um útsölu,
en sölutekjur gengju til greiðslu á pappír, prentun og bandi, þar til er fullborgað væri,
síðan yrði greitt handrit, myndir og myndamót, en ágóða þar eftir skipt að jöfnu milli
Náttúrufræðifélagsins og Norðra og skyldi hlutur félagsins renna í Minningarsjóð
um Stefán skólameistara Stcfánsson. Samningur þessi var undirritaður 24. febr. 1948, og
kom Flóran út í nóvember sama ár. Er skylt að þakka bókaútgáfunni Norðra mikla
lipurð og tilhliðrunarsemi við félagið í sambandi við þessa útgáfu og fyrir vandaðan
frágang á Flórunni. Sömuleiðis eiga þeir grasafræðingar, sem að útgáfunni unnu, þakk-
ir félagsins skilið fyrir vel unnið starf.
Fjárhagur félagsins
Þess skal með þakklæti getið, að Alþingi veitti félaginu styrki til starfsemi sinnar,
kr. 9.000,00 fyrir hvert áranna 1947—1949.
Eins og um getur í síðustu skýrslu, var samþykkt á aðalfundi félagsins þ. 22. febr.
1947, að hússjóður félagsins, að upphæð kr. 82.396,21, skyldi fylgja Náttúrugripasafn-
inu, er það yrði afhent ríkinu, en samningurinn um afhendingu safnsins og hússjóðsins
var undirritaður 16. júní 1947.
Reikningar félagsins, sem hér fara á eftir, sýna annars, hvernig fjárhag félagsins er
háttað og hvernig fé þess hefur verið varið þau þrjú ár, sem þessi skýrsla nær yfir.