Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1952, Qupperneq 7

Náttúrufræðingurinn - 1952, Qupperneq 7
HVERFJALL 149 13. mynd. Neðra borðið á túffstykki því, sem sýnt er á 12. mynd. Náttúruleg stærð. The bottom layer of the piece of tuff shown on Fig. 12. Natural size. Ljósm. Tómas Tryggvason. vikurmolar. Finna má í túffinu smásteina, 1—3 sm í þvermál. Túffið er grátt að sjá, þar sem það er veðrað, en grásvart í fersku broti. Víða er það nokkuð samlímt vegna hverahita, því að þarna rýkur hvar- vetna úr jörðu. Túfflögin hafa upprunalega legið alveg samlægt undirlaginu, en eru nú víða högguð, og mun það vera í sambandi við jarðskjálfta og sprungumyndanir, en land er þarna allt gegnunr- skorið af sprungum. Allt í kringum þessa stabba er dílahraun, senr runnið hefur úr stórum gíg örskammt austur af þeim. í fljótu bragði virðast stabbarnir standa upp úr hrauninu, og svo mun prófessor Barth hafa talið, því að hann hefur birt myndir af þessum stöbbum og segir þá vera sandlög í palagónítmynduninni (Volcanic Geology, Pl. 21), en er ég gróf þarna smávegis sumarið 1950, kom í ljós, að hraunið lá undir þeim, og var hér því greinilega um póstglacíalt túff að ræða. Þarna var þá loks fundið póstglacíalt öskulag nógu þykkt til að geta samsvarað sprengigosi því, er myndaði Hverfjall. Og grunur

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.