Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 15

Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 15
H VERFJALL 157 mældi ég nokkur jarðvegssnið meðfram austurjaðri Grænavatns- bruna, frá Bláhvammi norður fyrir Seljahjallagil. Þar fann ég aftur þetta svarta lag, og varð það greinilega þykkara og grófara eftir því sem nær dró Þrengslaborgum (sbr. snið V og VI, 18. og 19. mynd). Og í sniðum, sem ég gróf um 100 m fyrir austan Þrengslaborgaröð- ina sunnantil, var lagið ennþá þykkara og sem fínmöl að grófleika, en ofan á því ungur fokjarðvegur (sbr. Laxárgljúfur og Laxárhraun, 29. mynd). Austur frá Þrengslaborgum þynntist lagið og var aðeins 4 sm þykkt rétt fyrir austan Hvannfell. Hér af virtist mér auðsætt, að þetta lag hefði myndazt í gosi því, sem myndaði gígaraðirnar Þrengslaborgir—Lúdentsborgir og Laxárhraunið yngra, enda virtist afstaða þess koma allvel heirn við afstöðu yngra Laxárhraunsins til H3 í Laxárgljúfri. En eftir að hafa komizt að raun unr hinn unga aldur Hverfjalls, fóru að renna á mig tvær grírnur, og síðasta daginn, sem ég dvaldist í Mývatnssveit sumarið 1951, hélt ég í fýluveðri suð- ur með Þrengslaborgum til þess að athuga nánar afstöðu þessa ösku- lags til Þrengslaborga. Skammt frá sniði því austan Þrengslaborga, sem áður getur, en nær Þrengslaborgum, aðeins um 30 m austan eins af syðstu gígunum, gat ég í skorningi mælt snið það, sem sýnt er sem VII á 18. og 19. mynd og ljósmynd er af á 20. mynd. Hér er efst um 40 sm þykkt lag af samanklesstum hraunkleprum („Schweiss-Schlac- ken“) úr Þrengslaborgum, þetta lag gengur án skarpra marka yfir í gjalllag, sem verður nokkru fíngerðara, er neðar dregur, og er auð- sæilega myndað í sama gosi og hraunklepralagið, þ. e. Þrengslaborga- gosinu, en undir þessu lagi var 13 sm þykkt lag af fremur grófri fok- mold með þremur fíngerðum svörtum öskuröndum, og þar undir kemur svarta fínmöluga lagið. Það er því nokkru eldra en Þrengsla- 19. mynd. Kort af umhverfi Hverfjalls. Jaðrar liraunstrauma og eldvörp samkv. ófull- gerðu jarðfræðikorti höf. Strikuð hraun eru yngri en Hverfjallsaskan; hraun með opnum liringum eldri cn sú aska. Hraun úr Mývatnseldum 1724—1729 eru alsvört. Gervigígir eru táknaðir með punktum og fylltum hringum. Lega jarðvegssniðanna á 18. inynd er sýnd með krossum og rómverskum tölum, þykkt Hverfjallsöskunnar (í sm) með arahiskum töl- um. — Map of the surroundings of Hverfjall. Contours of lavaflows and position of craters and crater rows according to a preliminary geological map based on author’s fieldwork. Lava flows younger than the tephra layer from Hverfjall are shaded, those older than that layer are designated with open circles. The lava flows from 1724—1729 are black. Pseudocraters are designated with dots and filled circles. The soil profiles on Fig. 18 are marked with a cross and Roman numerals; thickness of the Hvcrfjall tcphra (in cm) is shown by Arabic numeráls.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.