Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 18
160
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Magn gosefna úr Hverfjallsgosinu
Ég hef reynt að fylgja útbreiðslu Hverfjallsöskunnar lengra frá
Hverfjalli. Þykkt þess í þeim sniðum, sem ég hef mælt á Mývatns-
svæðinu, er sýnd á kortinu á 19. mynd. Það erfiðar mjög athugun á
útbreiðslu og þykktardreifingu þessa öskulags, hversu útbreidd yngri
hraun eru á þessum slóðum. Aðalstefna öskumakkarins hefur verið
til NA. Við þjóðveginn beint S af Jörundi, 12 km NA af Hverfjalli
(snið XI á 18. mynd) er lagið 15 sm þykkt og mjög grófsöndugt og er
þar enn greinilega lagskipt. Rétt norðan við þjóðveginn, 5 km aust-
ar, er lagið um 8 sm þykkt. Ekki fann ég lagið með vissu í sniðurn
norðan í Biskupshálsi á Hólsfjöllum né heldur undir bæjanústun-
um á Gömlu Grímsstöðum, og ekki hef ég heldur orðið þess var í
jarðvegssniðum í Axarfirði. Hinn norðaustlægi öskugeiri hefur því
verið næsta mjór. Vestan Mývatnssveitar hef ég ekki fundið þetta
öskulag í jarðvegssniðum.
Hversu mikið rnagn gosefna hefur komið upp í Hverfjallsgosinu,
verður ekki sagt með neinni nákvæmni, en nokkrar tölur skulu þó
nefndar, er gefa hugmynd um þetta magn. Með hjálp formúlunnar
fyrir rúmmáli stýfðrar keilu er hægt að reikna út rúmmál Hverfjalls
sjálfs, og er það (að skálinni frádreginni) um 130 milj. m3. Rúmmál
öskulagsins innan 25 km fjarlægðar frá fjallinu er, lauslega áætlað,
um 100 milj. m3. Heildarrúmmál hinna föstu gosefna í því saman-
þjappaða formi, sem þau eru, má áætla 300—400 milj. m3, og hefur
það vart verið minna en um hálfur miljarð m3 strax eftir gosið. Til
þess að geta farið nærri því, hversu miklu rúmmáli af föstu bergi
þetta mótsvarar, hef ég fengið ákvarðaða rúmþyngd túffsins í Hver-
fjalli sjálfu og í stöbbunum suður af Jarðbaðshólum. Samkvæmt
þessari ákvörðun, sem gerð var á Atvinnudeild Háskólans af Haraldi
Ásgeirssyni, er rúmþyngd túffsins í gígveggjunum (að grjóti frá-
skildu) 1.76 og nær nákvæmlega hin sama (1.75) er rúmþyngd túffs-
ins suður af Jarðbaðshólum. Rúmþyngd þétts bergs sömu efnasam-
setningar er um 2.9 og samsvarar því rúmmál Hverfjalls sjálfs um 80
milj. m3, en heildarmagn fastra gosefna um 200 milj. m3 af þéttu
basaltbergi. Er það meira en fjórði hluti af magni þeirra föstu gos-
efna, sem komu upp í síðasta Heklugosi, en sjálft öskumagnið mun
minni um Laxárgljúfur. I.íklega er það fullhátt áætlað, og verður vonandi hægt að
skera úr því á næstunni með Carbonl-l ákvörðun, en sýnishorn af mó hið næsta þessu
öskulagi hefur einnig verið sent út til aldursákvörðunar. Aldur H.j hef ég áætlað um
4500 ár.