Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 21

Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 21
HVERFJALL 163 Ég skal nú leitast við að skýra þennan einhliða halla laganna. Það er alkunnugt, að lausum jarðefnum (möl, sandi o .s. frv.) er hægt að hrúga upp í mismunandi brattar hrúgur, og fer það eftir kornastærð og kornalögun efnisins. Verði hallinn meiri en að vissu marki, sem kalla mætti skriðmörk og er mismunandi eftir því, hvert efnið er, hrynur úr veggnum, þar til er brekkuhallinn (the sloping angle) er aftur kominn niður að skriðmörkum. Skriðmörk Hverfjallstúffsins, áður en það harðnaði, hafa verið um 30°, og jókst því halli hliðanna, meðan fjallið var að hlaðast upp, þar til er hann var orðinn um 30°, en hélzt síðan nær óbreyttur úr því. Halli túfflaganna ofan til í fjallinu er ákvarðaður af skriðmörk- um vikurkornanna í túffinu, og mynda þessi lög því skarpt horn við túfflögin utan fjallsins, sem ekki hafa skriðið neitt, síðan þau féllu, og liggja sem næst lárétt. Kemur þetta heim við tilraunir, sem hol- lenzki jarðfræðingurinn Kuenen hefur gert á tilraunastofu til að sýna myndun sprengigíga. Núverandi halli úthliða Hverfjalls er á- kvarðaður af skriðmörkum grjótsins, sem veðrazt hefur úr túffinu, en þau eru um 20°. Skýringin á vöntun innhallandi laga er að mínum dómi sú, að meðan fjallið var að hlaðast upp, héldu sprengingamar í gígkverk- inni innveggjunum brattari en sem svaraði skriðmörkum gosmalar- innar (30°). Sú gosmöl, sem féll á gígveggina innanverða, hrundi því jafnharðan niður í gíginn aftur og þeyttist á ný upp í eftirfar- andi sprengingum, en náði ekki að safnast svo nokkru næmi innan á gígveggina (þess má geta, að er ég mældi halla innveggjanna í Axlar- gíg á Heklu í sept. 1947, rétt eftir að gosið hafði hætt í honurn, var halli gígveggja að utan rúmar 30°, en að innan um 40°, lögunum hallaði, eins og í Hverfjalli, einvörðungu út á við). Það verður einnig að gera ráð fyrir því, að Hverfjallsgosið hafi ekki farið smárénandi, meðan aðalgígurinn var að hlaðast upp, heldur haldizt með svipuðum krafti eða fremur færzt í aukana, þar til er aðalgosið hætti skyndilega. Síðan hefur eftir litla hvíld komið smágoshrina, sem byggði upp innri keiluna. Hefur sú hrina smá- dvínað og gígurinn því smáþrengzt, unz hann fylltist alveg. Línurit af líklegum gangi goss þess, sem myndaði Hverfjall, er sýnt á 23. mynd.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.