Náttúrufræðingurinn - 1952, Qupperneq 31
Sigurður Pétursson:
Fljúgandi diskar
Ennþá einu sinni eru furðufliigvélarnar komnar í fréttadálka
heimsblaðanna og vekja nú, eins og jafnan áður, ýmist furðu eða
skelfingu hjá lesendunum. í síðastliðin 5 ár hafa öðru hverju verið
að berast fréttir af kynlegunr loftsjónunr og lýsandi blettum, sem
svifið hafa unr himinhvolfið, venjulegast með nriklunr hraða. Hefur
þessum flygildum verið h'kt við kringlur eða diska, en stundunr Irafa
þau verið sögð löng og mjó, líkust vindli. Sunrir þykjast jafnvel hafa
séð rauðan eldstrók aftur úr Jreinr, rétt eins og út frá útblástursröri
á flugvélamótor. Einna oftast hefur þessara fyrirbrigða orðið vart um
suðurhluta Bandaríkjanna, en þau lrafa líka sézt víða annars staðar.
Dularfull loftför eru ekki að sjást í fyrsta sinni núna. Svipað lrefur
oft átt sér stað áður, Jró að aldrei hafi orðrómurinn um Jressi fyrir-
brigði orðið eins Jrrálátur og nú, og skýringarnar á þeim eins marg-
víslegar. Annars er Jrað ekkert óeðlilegt, Jró að vart verði fleiri fyrii'-
brigða í himinhvolfinu nú en áður. Ber þar tvennt til: í fyrsta lagi
eru nú flugferðir og veðurathuganir með loftbelgjum komnar til
sögunnar, svo að umferð um loltið er mjög mikil, og í öðru lagi eru
athuganir á himinhvolfinu, bæði með berum augum og með radar-
tækjum, nú framkvæmdar nótt og dag á fjölda mörgum stöðum,
vegna flugumferðarinnar. Áður var meiri kyrrð bæði á jörðu og í
lofti. Færri vöktu um nætur, og fólk leit til himins endrum og eins,
til Joess að dást að fegurð lians. Samt kom það fyrir, að teikn sæust
á himni, eða jafnvel loftskip, eins og það var þá nefnt. Eitt slíkt skip
sást t. d. í Chicago 1897, og vakti Joað fyrirbrigði heimsatliygli.
Fólk er nú mjög að hætta Jdví að furða sig á hlutunum, Jiað er
orðið ýmsu vant. Trúin á tæknina er orðin svo rnikil hjá almenn-
ingi, að Jsað nálgast oftrú. Flestir Jrekkja af afspurn eldflaugarnar,
sem notaðar voru í síðasta stríði, og vitað er, að stöðugt eru gerðar
tilraunir, sem miða að því að endurbæta slík skeyti. Það er meira að