Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 35

Náttúrufræðingurinn - 1952, Page 35
Finnur Guðmundsson: íslenzkir fuglar IV Fýll (Fulmarus glacialis (L.)) Fýllinn er meðalstór Cugl (þyngd 600—800 g) og ekki ólíkur mᣠí útliti. Hann á þó ekkert skylt við máfa, því að hann telst til glöggt afmarkaðs og frumstæðs fuglaætt- bálks, er á vísindamáli kallast Procellariiformes, en til þess ættbálks teljast einnig skrof- an og sæsvölurnar, sem hér á landi verpa aðeins í Vestmannaeyjum. Fýllinn er hvítur að neðanverðu og á höfði og hálsi. A baki, vængjum og stéli er hann ljósgrár, og eru vængbroddarnir dekkstir. Nefið er grængrátt eða blágrátt, gult í oddinn. Fæturnir eru hvítgráir, stundum með gulleitum, grænleitum eða blágráum blæ. Lithimna augans er brún. Fýllinn mun þekktastur meðal almennings fyrir það, að hann spýr lýsi, ef hann verður fyrir styggð eða ef á hann er ráðizt, og að af fuglinum sjálf- um og eggi hans leggur mjög sterka og óþægilega lykt (moskuslykt). Lýsið kemur úr kirtlum í kirtlamaga fuglsins, en um upptök moskuslyktarinnar er lítið vitað, en hún stafar þó ekki af lýsinu eins og flestir munu halda. Heimkynni fýlsins eru í norðanverðu Atlantshafi og Norður-íshafinu og nyrzt í Kyrrahafinu. í Norður-íshafinu er hann varpfugl á Novaja Zemlja, Franz Jósefslandi, Spitsbergen, Bjarnareyju, Jan Mayen, Grænlandi, Baffinslandi, Ellesmerelandi og De- voneyju. Atlantshafsvarpstöðvar fýlsins eru á íslandi og Bretlandseyjum og í Færeyjum og Noregi. í Kyrrahafinu er hann varpfugl á Kúrileyjum, Aljútaeyjum og eyjum í Beringshafi. Hér á landi er fýllinn afar algengur bjargfugl umhverfis land allt, en það er langt frá því að svo Irafi alltaf verið. Það er margt, sem bendir lil þess, að fyrir 200—250 ár- um hafi fýllinn verið sjaldgæfur varpfugl hér á landi, en á fyrri helming 18. aldar lít- ur út fyrir að honum hafi farið að fjölga skyndilega, og hefur sú fjölgun haldið áfram fram á þennan dag. Elztu heimildir íslenzkar þar sem fýlsins er getið eru Hallfreðar saga (fúlmár) og Snorra Edda (fýlingr), en talið er, að bæði þessi rit hafi verið skráð snemma á 13. öld. í íslandslýsingum Sigurðar Stefánssonar (Qualiscunque Descriptio Islandiae) frá síðasta tug 16. aldar og Gísla Oddssonar (De Mirabilibus Islandiae) frá 1638 er fýlsins getið sem islenzks fugls, og ennfremur í riti Jóns Guðmundssonar lærða um íslands aðskiljanlegar náttúrur frá fimmta tug 17. aldar. í jarðabók Árna Magnús- sonar og Páls Vídalíns er þess getið, að Grímseyingar sígi á áliðnu sumri í bjargið eftir fýlingsunganum, þegar hann sé kominn undir flug, hverjum feng þeir eins skipti og egg- veiðinni. Þessar upplýsingar eru frá árinu 1713, og að því er ég bezt veit er þetta elzta heimildin þar sem ákveðinn varpstaður fýlsins hér á landi er tilgreindur. f ferðabók Egg- erts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar er getið þriggja varpstaða fýlsins hér á landi, og eru það Grímsey, Vestmannaeyjar og Reykjaneseyjar. Ferðabókin byggist eins og kunn- ugt er á rannsóknarferðum þeirra Eggerts og Bjarna hér á landi á árunum 1750—1757. Það má leiða sterk rök að því, að fýllinn hafi þá tiltölulega nýlega verið farinn að Náttúrufrœðingurinn, 4. hefti 1952 12

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.