Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 41

Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 41
Ingimar Óskarsson: Nýtt afbrigði af hrafnastör Carex saxatilis L. Sumarið 1950 sendi mér Hálfdán Björnsson, bóndi að Kvískerjum í Öræfum, hrafnastör með hélugráum kvenöxum. Að útliti voru starareintök þessi svo ólík því, sem venja er til með hrafnastör, að ætla mátti við fyrsta tillit, að hér væri ný tegund á ferðinni. Eftir að ég hafði athugað störina nákvæmlega og kornizt að raun um, að hér var um nýtt og nrjög sérkennilegt afbrigði af hrafnastör að ræða, skrifaði ég Hálfdáni, sem er rnjög nákvæmur og áreiðanlegur í öll- um sxnum athugunum á náttúrunni, og bað liann um að senda mér upplýsingar um fundaistað og útbreiðslu þessa einkennilega af- brigðis, og brást hann við því góðfúslega. Samkvæmt umsögn Hálfdánar vex stöián í landai'eign Kvískerja á nær því marflötu mýrlendi og sumpart í grunnum mýrarpolli. Fjar- lægð frá sjó er ekki meiri en það, að sjór flæðir oft inn yfir vaxtai- staðinn í sunnan stórrosum. Vaxtarsvæðið er lítið, naumast yfir 100 flatarmetrar að stærð, og einstaklingafjöldinn áreiðanlega nokkuð innan við 100. Auk afbrigðisins uxu á þessum bletti venjuleg hrafna- stör og mýrastör, eit aði'ar starir ekki. Hrafnastör er hánorræn stör og vex í ríkum mæli bæði vestan hafs og austan, svo og í Færeyjum og í háfjöllum Skotlands. Hér á landi er hún algeng í mörgurn héruðum landsins, en sjaldgæf í nokkrum, og er því tæpast hægt að telja liana algenga um land allt, eins og gert hefur verið. Mjög miklu hefur verið safnað af hrafnastör á ýmsum stöðum, og er því rnikið til af henni í giasasöfnum, bæði hérlendis og erlendis. Allt það, sem til er al' hrafnastör í Náttúrugripasafninu í Reykja- vík og í Grasasafninu í Kaupmannahöfn lief ég athugað, og auk þess nokkur afbrigði frá Kanada, en ekki getað fundið neitt, sem líkist Kvískerja-afbrigðinu. Frá Skandinavíu eða Færeyjum er heldur ekki

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.