Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1952, Qupperneq 42

Náttúrufræðingurinn - 1952, Qupperneq 42
) 182 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN ifttL' _ getið um afbrigði af hrafnastör. Þó fann ég í Grasasafninu í Höfn 1 eintak með rauðbrúnum axhlífum. Var það frá Færeyjum. En útlit og gerð axhlífanna var allt öðruvísi en á íslenzka afbrigðinu. Að því er ég bezt til veit, er því þetta umrædda, ljósexta afbrigði óþekkt áður, og hef ég skírt það vísindaheitinu C. saxatilis L. var. albocanes- cens n. var. Það, senr greinir afbrigðið frá aðaltegund, eru litur og gerð axhlífa á karl- og kvenöxunum og hulsturlitur. Eins og kunnugt er, er aðaltegundin með mósvört eða nærri hrafn- svört hulstur og mósvartar axhlífar, sem eru annaðhvort himnufalds- lausar eða með örmjóum faldi. Karlaxið rauðbrúnt. Afbrigðið er aftur á móti nreð gulbrún eða Ijósbrún hulstur og himnukenndar, hálfgagnsæjar axhlífar, senr annaðhvort eru eingöngu með grannri, mógrænni miðtaug, eða miðtaug og grænmóleitu, örmjóu, ógagn- sæju beltin sín lrvorum megin við liana. Þessi belti eru alltaf mjórri, oftast miklu nrjórri, en himnufaldurinn livor unr sig. Karlaxið ljós- gulbrúnt. Hin einkennilega gerð axhlífanna er það, sem gefur öxun- unr lrinn gráhvíta blæ. Ekki er ósennilegt, að afbrigði þetta vaxi á fleiri stöðum við suð- urströnd landsins, þar senr líkt lragar til og á Kvískerjum. Á hinn bóginn er hrafnastörin ekki áfjáð í að leita til strandar; kann betur við sig í mýrlendi til lieiða. Hugsanlegt er, að sjávarseltan liafi átt sinn lilut í því, að þetta nýja, kynlega afbrigði varð til. SUMMARY A new variety o£ Carex saxatilis L. was found in the summer of 1950 at Kvísker in Oræfi SE-Iceland. Its occurrcncc was restrictcd to ca. 100 m2 arca of marshy ground and to a small pool lying so close to the tidal zone, that sea water enters the locality during storm and high tide. The author has given the namc albocanescens n. var. to his new variety and de- scribed it in this way: — albocanescens n. var. A forma typica differt: Squamae g pallide flavco-fuscae. Squamae $ hyalinae sub-pellucidae nunc tantum perangusto fusco-virenti dorso nervo nunc nervo utroque latere nervi striis viride fuscescentibus semper angustior marginibus hyalinae. Utriculi virido-fuscesentes vel pallide fusci. Habitat in palude humida ad mare. Coll. orig.: Auster-orientalis Islandia, Kvískcr in Öræfi. Leg. Hálfdan Björnsson, VII. 1950. i

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.