Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 46
186
N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
3. mynd. liasaltbjarg
í Ketillaugarfjalli,
sem stendur á £a'ti úr
þursaberginu. —
A block of basalt on
a soclc of breccia.
Locality Kel;llaugar-
fjall. -
Ljósm. Jón Jónsson.
ið greinilega lagskipt, en víðast livar er það óreglulegt. í því er ara-
grúi ai: mismunandi basalttegundum, en einnig er í því nokkuð af
líparíti og jafnvel molar úr sandsteini. Nokkra rispaða steina tókst
mér að finna í því (4. mynd), en svo sjaldséðir eru þeir, að varla er
hægt að draga nokkrar ákveðnar ályktanir um uppruna bergsins af
þeim. í þessu sambandi má þó benda á þá staðreynd, að greinilega
rispaðir steinar eru sjaldgæfari við íslen/.ka jökla en ætla mætti.
Aðeins á einum stað tókst mér að finna mót þnrsabergsins og bergs
þess, er það hvílir á. Var það í hömrunum rétt norðan við Stóra
Leyni, en svo nefnist allstór hjalli vestan við Krossbæjartind. Basalt-
ið, sem þar liggur undir þursaberginu, er greinilega sorfið, að því
er virðist af vatni eða jökli. Engar rispur tókst mér að finna á því
þrátt fyrir allmikla leit.