Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 48
188
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
5. mynd. Þursabergið í Miðmundahrauni. — Br'eccia. Locality Miðmundahraun
near the Setberg farm. — /Vjósm. Jón Jónsson.
mjög misgengið og umturnað. Það liggur svo eins og kápa á öllu
fjallinu að norðan og alveg fram á liátind.
Ketillaugarfjall er innskot (intrusion), yngra en basaltið og þursa-
bergið. Það er mestmegnis út líparíti, granofyr og gabbro. Þegar það
myndaðist, hefur bergið, sem fyrir var, ummyndazt nokkuð (meta-
morfos).
Neðan við þjóðveginn upp í Almannaskarð liggur stórt bjarg, sem
auðsjáanlega hefur hrapað úr Skarðstindi. Það virðist vera úr þessari
sömu bergtegund, hlýtur því þursabergslagið að vera í tindinum.
Því miður vannst mér ekki tími til að athuga það nánar, en líklegt
virðist mér, að það sé nokkuð ofarlega í tindinum.
í Mineralogisk Museum í Kaupmannahöfn er geymdur steinmoli,
sem danskur náttúrufræðingur, Harder að nafni, liafði með sér
þangað. Sá steinn er tekinn í Grænafjalli við Heinaberg á Mýrum.
Ekki fæ ég betur séð en þar sé um sömu bergtegund að ræða.
Eg get ekki varizt þeirri hugsun, að þetta sé gamall jökulruðning-
ur. Slíkan fornan jökulruðning (tillite) hefur Pálmi Hannesson,
rektor, nefnt jökulberg, og mun ég halda því nafni hér. Það má þó