Náttúrufræðingurinn - 1971, Page 18
222
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
(Guðmundur Böðvarsson 1963). Hér á eftir verður mjög stuðzt við
þá ritgerð og einnig viðtal við Guðmund og fjölskyldu hans sl.
sumar, en einnig getið minna athugana, íárra og lauslegra.
í því broti a£ Heiðarvígasögu, sem varðveitzt heí'ur á skinnblöð-
um, er getið brúar á Hvítá með þessum orðum: „Þá var brú á ánni
uppi hjá Bjarnafossi og lengi síðan.“ Atburðirnir, sem þarna er
verið að segja frá, eiga að hafa gerzt í byrjun 11. aldar. En sagan
er talin hafa verið rituð nálægt 1200, og skilst á orðum hennar,
að þá hafi brúin fyrir nokkru verið af tekin; en ekki verður af
þeim ráðið, hvort hún var manna verk eða steinbogi. Ekki er að
efa, að Bjarnafoss var þar sem nú lieitir Barnafoss, þó að farvegur
og straumlag árinnar hafi margbreytzt.
Síðar kemur til skjalanna alkunn þjóðsaga um steinboga á
Barnafossi: Tvö börn ekkju, sem bjó í Hraunsási, hrapa af stein-
boganum og farast í fossinum, en móðir þeirra bregzt svo við, að
hún heggur steinbogann af ánni (Þjóðsögur Jóns Árnasonar, II.
1864, bls. 1863). Vart getur verið minni fótur fyrir þessari sögu
en sá, að einhvern tíma á fyrri öldum hali steinbogi (eða brú?)
verið á ánni og horfið.
I Ferðabók Þorvalds Thoroddsens (1914, III. bls. 10) er þess
ekki getið, að nokkur steinbogi hafi verið á Barnafossi, þegar
hann kom þar á rannsóknarferð sumarið 1890 og aftur 1898. Þar
er aðeins minnzt á þjóðsöguna um steinbogabrotið og enginn dóm-
ur lagður á sannfræði hennar. Af þessu ætti að mega marka, að
þarna hafi enginn steinbogi verið á síðasta tug 19. aldar. En raunar
er sýnt af lýsingu Þorvalds á árgilinu hjá Barnafossi, að hann
hefur skoðað Jrað heldur lauslega og jafnvel missýnzt um veiga-
mikið atriði, er liann telur gilið grafið í hraunið og einnig hraun
í botni þess, . . . „fellur áin í mörgum smábunum niður breitt en
lágt hraunhaft; líklega sameinast þessar bunur, jiegar meira vatn
er í ánni, og verður þá fossinn fallegri". Sami misskilningur
kemur fram annars staðar lijá Þorvaldi Tlioroddsen (1911, bls.
118), er hann telur þykkt Hallmundarhrauns hjá Barnafossi „100—
130 fet“, sem er margfalt of mikið.
Á kaflanum lrá Jrví (langt?) fyrir ofan Barnafoss og niður lyrir
alla Hraunfossa er gil Hvítár að litlu leyti grafið í Hallmundar-
hraun. Hraunið nær að vísu alls staðar fram á gilbarminn norðan
ár og myndar Jrar víðast [rverhnípt klettabelti efst, en aðeins 1—2