Náttúrufræðingurinn - 1971, Blaðsíða 43
NÁTTÚRUFRÆÐ I NGURINN
247
----- Listera ovata
12. mynd. Vestfjarðaplöntur. IV.
Fig. 12. Plants of tlie Western Fjords. IV.
lenzkar jafnategundir nema burstajafni, og 10 af 17 burknateg-
undum, sem þekktar eru hér á landi. Einnig er líklegt, að til þessa
flokks megi og telja þrílaufung (Dryopteris linnaeana) og hina
sjaldgæfu mánajurt (Botrychium boreale). Nokkur vafi getur þó
leikið á því með sumar þessar tegundir, hvort þær eru algengari
á Vestfjörðum en annars staðar (t. d. liðfætla, sæturót, álftalaukur),
en þær eru þó teknar hér með vegna þess, að útbreiðslumynztur
þeirra er nauðalíkt hinum eiginlegu Vestfjarðategundum. Allar
þær byrkningategundir, sem hér hafa verið taldar, koma einnig
fyrir á Miðnorðurlandi (nema skógelfting) og á Austfjörðum.
Skollafingur, liðfætla, sætmót o. fl. mega teljast hafa samfellda
útbreiðslu umhverfis landið, og ýmsar af hinum tegundunum eru
einnig mjög nálægt því að vera samfelldar, og eiga ef til vill eftir
að reynast svo við nánari könnun landsins. Stærstu eyðurnar í út-