Náttúrufræðingurinn - 1971, Qupperneq 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
255
tegundir leifar af flóru síðasta sumarskeiðs ísaldarinnar. Þær eru
því búnar að vaxa lengur einangraðar í þessu landi en nokkrar
aðrar tegundir og ættu því að sýna vissa erfðaeiginleika, sem eru
frábrugðnir sömu tegundum í grannlöndunum.
Loks er svo hinn stóri hópur plantna, sem telja má líklegt að
hingað hafi borizt í sögu ellefu alda byggðar. Utbreiðsla margra
plöntutegunda skýrist að sjálfsögðu allvef af því, að þær liafi borizt
hingað á seinni öldum. Reikna má með, að slíkar plöntur berist
fyrst til staða á ströndinni, einkum þeirra, sem mikið var siglt til,
og dreifist þaðan um landið. Utbreiðsla þeirra getur því virzt sæ-
leitin, þótt hún sé það raunverulega ekki. Á þetta hefur verið
bent í sambandi við Suðvesturlandstegundirnar og Mýrdalstegund-
irnar, sem margar gætu verið þannig til komnar.
Nú kann einhver að halda, að höfundur sé kontinn heilan hring
í kenningunni um útbreiðslu plantna með tilliti til loftslagsins, og
jafnvel farinn að afneita sinni eigin kenningu. Fyrir þann vil ég
endurtaka það, sem sagt var í fyrri hluta þessarar greinar (bls. 24),
að „ætlunin með þessum skrifum er engan veginn að sanna eitt
eða neitt, svo óhrekjanlegt verði. Fyrir mér vakir fyrst og fremst
að vekja athygli á merkilegu viðfangsefni, sem mér finnst að hafi
verið vanrækt hér á landi“.
Ég hef í undanfarandi köflum reynt að tína til allar þær teg-
undir háplantna, sem virðast sýna sæleitna eða landleitna út-
breiðslu, alveg án tillits til jiess, hvort þær eru í eðli sínu sæ-
leitnar eða landleitnar, enda í flestum tilfellum ómögulegt að
komast að raun um slíkt, nema með nákvæmum samanburði við
útbreiðslu tegundanna erlendis. Hins vegar er það almennt viður-
kennt af plöntulandfræðingum, að sama tegundin getur verið sæ-
leitin í einu loftslagi eða afbrigði loftslags, jiótt hún sé ]>að lítið
eða ekki í öðru. Samanburður við erlenda útbreiðslu hefur ]>ví
einnig takmarkað gilcli.
Hér er því eitt þeirra mörgu og miklu verkefna, sem bíða eftir
ungum og efnilegum gTasafræðingum til rannsóknar.
Ritgerð mína ber aðeins að skoða sem tilraun til skilgreiningar
á loftslagsmismun og loftslagsbundinni útbreiðslu plantna, fremur
en endanlega lausn þessa vandamáls eða kenningu. Mér er vel