Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1974, Síða 9

Náttúrufræðingurinn - 1974, Síða 9
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN 131 úr Miðjarðarhafslöndum í fyrstu og fylgt manninum, búfé lians og varningi land úr landi. Hjartarfi er næsta breytileg tegund, bæði eftir vaxtarstöðum og tilbrigðum eða stofnum tegundarinnar. í fastri, ófrjórri jörð nær hann litlum þroska, en verður hár og gróskumikill í frjósamri rnold. Sumir arfastofnar spíra á vorin og sumrin en aðrir á haustin og mynda blaðhvirfingu, sem stundum lifir veturinn. Sumir stofn- ar þrífast aðeins í góðri mold, en aðrir spjara sig á ófrjóum stöðum. Skilst af jressu, að hinir ýmsu hjartarfastofnar þrífast við æði ólík kjör og vegna þessarar fjölbreytni reynist arfanum fært að lifa afar víða, og hefur liann dreifzt út um mörg lönd fyrir ævalöngu. Víðast hvar finnur einhver stofn hans vaxtarstað við sitt hæfi. Hér vex hann aðallega kringum kaupstaðarhús og sveitabæi og sem illgresi í görðum. Sums staðar sést hann og í fjörum. Hefur sennilega slæðst með landnámsmönnum í fyrstu og hefur síðan öðru hverju borizt með varningi, og geta þá komið nýir stofnar. í Danmörku hefur hann fundizt í tvö þúsund ára gömlum jarðlögum, og í Noregi fannst hann í hinu fræga „Ásubergsskipi“. Hann hefur sennilega verið orðinn illgresi í Noregi þá þegar, en hugsanlegt er líka, að fræin hafi verið látin i skipið af ásettu ráði, því að hjartarfinn er forn lækningajurt. Hjartarfi er einær jurt, en fræin geta lifað ár- um saman í moldinni og spírað, er þau koma upp, t. d. við jarð- vinnslu. Á undanförnum árum hafa grasafræðingar reynt að nota stofna eða undirtegundir arfans til að fá vitneskju um, hvaðan hann hefur borizt til ýmissa staða, en það gefur bendingar um þróun jarðrækt- ar og jafnvel þjóðflutninga fyrr á tímum. í Bandaríkjunum t. d. virðast slíkar rannsóknir hafa sannað, hve mikinn þátt Suður- Evrópubúar og Frakkar hafa átt í jarðyrkjunni. Flestir arfastofn- arnir vestra eru nefnilega hinir sömu og í Suðurlöndum og Frakk- landi. — í okkar augum er hin stinna og spengilega jurt, Iijart- arfinn, aðeins illgresi, en forfeðrum vorum var hann jafnframt góð lækningajurt. í honum eru efnasambönd (cholin, tyramin o. fl.), sem m. a. verka gegn blæðingum í fósturlegi, lungum, maga o. fl. Fræin voru notuð sem fjöraukandi lyf og einnig gegn harðiífi. Áhrifamáttur hjartarfans gegn innri blæðingum var þekktur fyrir löngu, en notkuninni var að rnestu hætt og hún hálfgleymd. En á stríðsárunum 1914—1918, þegar mikill skortur lyfja var, tóku Þjóð-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.