Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1974, Page 23

Náttúrufræðingurinn - 1974, Page 23
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 145 Jón Jónsson: Sundhnúkahraun við Grindavík Inngangur. Á Reykjanesskaga er mikill fjöldi eldstöðva og hrauna. Mörg þeirra hafa ekki nafn, svo vitað sé. Vafalaust hafa ýms örnefni fallið í gleymsku hin síðari ár og önnur brenglazt. Hraun eru allt umhverfis Grindavík, þorpið stendur á lirauni og á beinlínis hrauni tilveru sína að þakka, eins og hér mun verða sýnt fram á. Sundhnúkahraun og Sundhnúkur. Hluti af hrauninu ofan við Grindavík, milli Járngerðarstaða- hverfis og Þorbjarnarfells, ber nafnið Klifhólahraun. Af þessu virð- ist mega ráða að til séu örnefnin Klifhólar og Klif, en hvar þau eru, hefur mér ekki tekizt að fá upplýsingar um. Hólar eru ekki á svæðinu, nema gíghólarnir suðvestur af Hagafelli, en samkvæmt korti herforingjaráðsins 1:50000 heitir sá hóll Melhóll. Þaðan er verulegur hluti hrauns þess, er Klifhólahraun er nefnt, án efa kom- ið, því að hólarnir eru endinn á langri gígaröð. Sökum þeirrar óvissu, sem ríkir um þessi örnefni, hef ég leyft mér að nota hér nýtt nafn um hraunin og eldvörpin, sem þau eru komin frá. Það skal þó tekið fram, að þetta nafn er eingöngu hugsað sem jarðfræðilegt liugtak og breytir að sjálfsögðu ekki ör- nefnum, sem fyrir eru á svæðinu. Ennfremur gildir þetta aðeins fyrir eldvörp Jrau og hraun, sem til urðu í Jrví gosi, sem síðast varð á Jressu svæði. Gígaröðin. Gígaröð sú, sem Sundhnúkahraun er komið úr, byrjar suðvestan undir Hagafelli. Þar eru nokkrir gígir í röð, og er, eða öllu heldur var, einn þeirra mestur, Jrví að nú hefur hann verið um langan tíma notaður sem náma fyrir rauðamöl, og er Jrví farinn að láta á 10

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.