Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1974, Page 31

Náttúrufræðingurinn - 1974, Page 31
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 153 Ummyndun og jarðhiti. Eins og áður var getið um, er jarðhiti í hrauninu vestur af Svartsengisfelli. Þar hefur mælzt yfir 60° hiti. Engum efa er bund- ið, að allstór liver lilýtur að vera þarna undir hrauninu, því líklegt má telja, að vart séu minna en 20—30 m niður á grunnvatnsborð á þessum stað. Við hagstæð veðurskilyrði, logn og nálægt 0° C má sjá gufur leggja upp úr hraununum víðs vegar á þessu svæði. Eru þær í áberandi beinum línum, sem sýnir, að þær eru bundnar við sprungur í berggrunni þeim, sem Sundhntikahraun og önnur hraun hafa runnið yfir. Rétt austan við veginn norðan í Selhálsi hefur hraunið runnið út á svæði, sem er mjög ummyndað af jarðhita. Það er athyglis- vert, að hraunið sjálft er þarna líka nokkuð ummyndað, en það sýnir, að þarna hefur verið virkur jarðhiti, eftir að hraunið rann, þ. e. fyrir eitthvað skemur en urn það bil 2400 árum. Ummyndun eftir jarðhita er þarna víða í kring, bæði í Þor- bjarnarfelli og Svartsengisfelli. Sömuleiðis er mikil jarðhitaum- myndun í austustu gígunum í Eldvörpum við hina fornu slóð milli Njarðvíkur og Grindavíkur. Boranir þær, sem gerðar voru á þess- um stað 1971, hafa staðfest, að þarna er um háhitasvæði að ræða. Ef marka má af ummyndun, og eins því á hve stóru svæði vart verður við gufur í hraununum við hagstæð skilyrði, þá er svæðið ekki lítið. Eftir er nú að kanna takmörk þess. HEIMILDARIT BárÖarson, G. G., 1929: II. Neue Forschungen aut Reykjanes. Mitteil. der Islandfreunde XVIII. Jahrg. H. 1, Jena. Jónsson, ]., 1970: Á slóðuni Skaftár og Hverfisfljóts. Náttúrufr., 39: 180—209. Reykjavík.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.