Náttúrufræðingurinn - 1974, Síða 32
154
N ÁTTÚ RU FRÆÐINGURINN
Ingimar Óskarsson:
Nokkrar fágætar skeldýrategundir við Island
Skipulagðar rannsóknir á lindýrum við Island hafa enn ekki verið
hafnar. Þrátt fyrir það koma við og við í leitirnar fágætar tegundir
á því sviði, aðallega fyrir atbeina nokkurra skeljasafnenda. Einkum
hafa rannsóknir á innihaldi ýsugarna gefið góðan árangur. Sér í
lagi þakka ég Jóhannesi bónda Björnssyni í Ytri-Tungu á Tjörnesi
fyrir að senda mér til athugunar og ákvörðunar skeldýrategundir,
sem ekki haia fundizt áður við Island.
íslenzku heitin á hinum nýfundnu tegundum hefur höfundurinn
búið til.
Fjörudoppa Littorina littorea L.
Tegund þessi er af Fjörudoppuætt (Littorinidae). Að lög-
uninni til svipar henni til klettadoppu, en er venjulega stærri.
Liturinn er ólífubrúnn eða grásvartur, stundum gulleitur, einnig
getur kuðungurinn verið röndóttur eða flikróttur. Skelin er traust
og eru vindingarnir 6—7 að tölu, fremur flat-
vaxnir. Grunnvindingurinn er stór með skýrum
og þéttstæðum gárum. Saumurinn grunnur. Ann-
ars er yfirborð kuðungsins með fíngerðum lang-
rákum og þverrákum. Innri brúnin á útrönd
munnans er svört að lit.
í ritinu „The Zoology of Iceland" getur höf-
undurinn, G. Thorson, þessa sæsnigils. Um hann
5 mm íarast honum þannig orð (í lauslegri þýðingu):
1. mynd. „Fjögur eintök án dýrs merkt ex Islandia John-
Fjörudoppa sen, eru til í Kaupmannahöfn í safni Kristjáns
(Graham). VIII. Útlit eintakanna bendir til þess, að Jrau
hafi verið lifandi er þau fundust. Stærðin á
tveimur þeirra (breidd X hæð) er 17,2 X 20,4 og 11,6 X 13,1 mm.
Þá finnst í dýrasafninu í Kaupmannahöfn eitt fullvaxta eintak