Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1974, Side 43

Náttúrufræðingurinn - 1974, Side 43
N ÁTT Ú RUFRÆÐINGURINN 165 m. a. í Danmörku, eru kartöflur teknar upp með vélum og þvælist þá stundum ýmislegt með sem er af svipaðri stærð og lögun og kartöflurnar, t. d. tinnusteinar, en tinna er nokkuð algeng í ísaldar- lögum, jafnvel í jarðvegi, sums staðar í Norðvestur-Evrópu. Ekki er hægt að segja, að þetta komi beinlínis á óvart, því að lögin, sem liggja ofan á krítar- og daníenlögunum, eru oft þunn og, t. d. í Danmörku, að mestu leyti úr jökulruðningi. Þar er ýmsu blandað saman og oft mikið um tinnusteina, sem þola vel hnjask vegna hörku sinnar. Stundum má jafnvel linna steingervinga í lögum þessurn. Eru þeir á sama hátt og tinnusteinarnir ættaðir úr setlög- um, sem jökullinn hefur skriðið yfir. Vil ég nú gera langa sögu stutta, því mér þykir sennilegast, að steingervingurinn frá Vatnsfirði sé kominn til íslands sem dönsk kartafla! Síðasta áfangann, á fundarstaðinn í Vatnsfirði, hefur hann og vafalítið komizt af mannavöldum. Geri ég því skóna, að einhver svangur ferðamaður, sem ekki kunni að meta fjölbreytni danskra jarðepla, hafi fleygt honum frá sér með viðeigandi orðbragði. Nokkur orð um daníen. Jarðsöguleg staða daníens heiur um alllangan tírna verið eitt af þrætueplum jarðlagafræðinga. Flestir álíta nú orðið, að það til- heyri tertíertímabilinu og sé þá fyrsta skeið paleósentímans. Hins vegar halda nokkrir jarðlagafræðingar ennþá fast við þá uppruna- legu hugmynd, að skoða beri daníen sem lokatíma krítartíma- bilsins. Eins og nafnið ber með sér er daníen kennt við Danmörku, enda er þar að finna vel varðveitt jarðlög frá þessum kafla jarðsöguunar. Nægir í því sambandi að minna á lögin við Fakse og í Stevns Klint á Sjálandi. Þegar á heildina er litið, virðast lög frá daníen nokkuð útbreidd í Evrópu og hafa einnig fundizt í Asíu, Afríku, Norður- og Suður-Ameríku (sbr. Hansen, 1970). Neðri mörk daníens eru bezt þekkt í Stevns Klint, þar sem það hvílir á krítarlögum (2. mynd). Krítin (skrifkrítin) er Iivít á lit, fínkornótt og venjulega nokkuð laus í sér. Allt að því 95% af henni er myndað úr svonefndum kokkólítum, sem eru örsmáar kalkplötur svifvera (Mastigophora) á mörkum dýra og plantna. Götungar (fóramíniferar) eiga hins vegar miklu minni þátt í mynd-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.