Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1974, Síða 53

Náttúrufræðingurinn - 1974, Síða 53
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 175 Eysteinn Tryggvason: Hve hratt síga Þingvellir? Inngangur Stórt svæði norðan Þingvallavatns er þakið hrauni, sem runnið hefur frá Skjaldbreið og frá mikilli gossprungu, sem liggur frá suð- vestri til norðausturs á milli Hrafnabjarga og Kálfstinda snemma á nútíma. Aldur jurtaleifa, sem fundust undir Þingvallahrauni við Sogið, hefur verið ákvarðaður með geislakolsaðferð og reyndist vera rúmlega 9000 ár (Guðmundur Kjartansson, 1964). Má því gera ráð fyrir, að sá hluti hraunsins, sem eitt sinn stíflaði Sogið, sé um 9000 ára gamalt. Ekki er vitað, hvort hraunið norðan við Þing"vallavatn hefur runnið á sama tíma og hraunið við Sogið, en þar sem engar aldursákvarðanir hafa verið gerðar á j)ví svæði og útlit hraunsins bendir ekki til þess að það sé ungt, jiá er hér gert ráð fyrir, að jjað sé einnig um 9000 ára gamalt. Þetta hraun hefur runnið til vesturs og suðvesturs, allt að Brúsastaðabrekkum, svo að landslag á Þingvallasvæðinu hefur verið allt annað fyrst eftir að hraunið rann, en j)að sem nú er. Lægð sú, sem liggur til norðaust- urs frá Þingvallavatni á milli Almannagjár og Hrafnagjár, hefur þá ekki verið til, og hraunið vestan Almannagjár hefur jrá hallað til vesturs, en nú hallar Jjví til suðausturs, eins og rennsli Öxarár sýnir. Þingvellir hafa sigið um rúma 30 metra rniðað við vesturbai'm Almannagjár. Ef miðað er við vesturjaðar hraunsins á milli Kára- staða og Brúsastaða, Jrá hefur sig Þingvalla verið enn meira, senni- lega 40 til 50 metrar. Við Vatnsvík í norðausturhorni Þingvalla- vatns hefur landið sigið enn meira en á Þingvöllum, en erfitt er að gera sér grein fyrir, hve miklu þar munar. Ef gert er ráð fyrir, að hraunið við Vatnsvík hafi sigið um 20 til 40 rnetra rniðað við Þingvelli, sem er ekki ósennilegt, þá er sigið þar samtals 60 til 90 metrar miðað við vesturjaðar hraunsins. Allt þetta sig hefur orðið á síðustu 9000 árum. Sig Þingvalla hefur ekki allt skeð samtímis. í miklum jarð-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.