Náttúrufræðingurinn - 1975, Síða 54
44
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Enda setja þau höfuðsvipinn á gróðurinn í þessum norðlæga lands-
hluta, sem er smám saman að líkjast ósnortnu landi meir og meir.
Heilar fjallahlíðar eru þar blá- og gulflikróttar af blómskrúði frá
fjöru upp í skriður og kletta.
Byggðarinnar sér þó enn víða stað og ræktunarinnar sem henni
fylgdi, jafnvel á stöðum þar sem engin ræktun hefur verið í 30—40
ár og enda þótt þar hafi aldrei verið gott land til ræktunar vegna
snjóþunga og annara þátta veðurfarsins, sem gera túngrösum erfitt
uppdráttar. Það eru heldur ekki túngrösin sjálf, sem mest ber á
umhverfis bæjarstæði og á gömlum túnstæðum, heldur fyrst og
fremst sóleyjar, þ. e. brennisóley (Ranunculus acris), sem lengst
af hefur reyndar verið talin illgresi í túnum, og skriðsóley (Ranun-
culus repens), alræmt garðaillgresi. En þær kunna vel við sig í
næringarríkum jarðvegi og hafa víða komið sér vel fyrir, þar sem
áburður er enn í jörðu frá fyrri árum.
Einmitt þetta tvennt, blómskrúðið í brekkunum og sóleyja-
breiðurnar umhverfis bæjarstæðin, finnst mér mest áberandi við
fyrstu sýn í gróðurfari Hornstranda og Jökulfjarða eins og það er
nú, þó fleira komi þar til, sem getið verður um hér á eftir.
Háplöntuflóra þessa svæðis er býsna fjölskrúðug miðað við að-
stæður, þ. e. fjöldi þeirra tegunda sem þar vaxa er allmikill. Á
ferðum mínum um þetta svæði lief ég alls fundið þar 212 tegundir
háplantna, þ. e. a. s. blómplantna og byrkinga, ef túnfíflar og
undafíflar eru ekki taldir með. Ingólfur Davíðsson (1937) getur
alls 193 tegunda háplantna frá Hesteyri og Aðalvík, þar af eru
9 tegundir sem ég hef ekki fundið. I skrá sinni frá 1948 telur
Áskell Löve 274 tegundir, að meðtöldum 14 fíflum og undafíflum,
vaxa á svæðinu frá Hornvík til Barðsvíkur. Af þeim eru 45 sem
ég hef ekki rekist á, meira að segja sumar taldar algengar. 23 þess-
ara tegunda tel ég líklegast að vaxi á þessu svæði nú, en hinar 22
vafasamar af ýmsum ástæðum. Niðurstaðan verður því sú, að ég
tel 244 tegundir háplantna vaxa villtar á þessu svæði með nokkuð
góðri vissu, og að auki einhverjar tegundir fífla og undafífla, svo
heildarfjöldinn verður einhvers staðar á milli 250 og 260, senni-
lega nær 260. Meðal þeirra vafasömu tegunda, sem Áskeli Liive
telur sig hafa fundið á þessum slóðum sumarið 1932 (sbr. Á. Löve,
1947, 1948a, 1948b og Á. og D. Löve, 1956), eina sumarið, sem hann